Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt samkomulag sem
Reykjavíkurborg hefur gert við félagið LL09
ehf. um uppbyggingu á lóðunum Brautarholt
18-20. Samkvæmt samkomulaginu verða 64
íbúðir innréttaðar á 2.-5. hæð í húsunum.
Umrædd hús eru á horni Brautarholts og
Nóatúns. Þau hafa verið í niðurníðslu og lýti á
hverfinu. Brautarholt 20 hefur staðið autt frá
því að Baðhúsið var flutt yfir í Smáralind í lok
árs 2014 en á árum áður var það viðkomustaður
margra Reykvíkinga þegar rekinn var þar vin-
sæll skemmtistaður, Þórscafé.
Fram kemur í kynningu að skrifstofa borgar-
stjóra og borgarritara hafi átt í viðræðum við
lóðarhafa á grundvelli samningsmarkmiða
Reykjavíkurborgar um fyrirhugaða uppbygg-
ingu á reitnum. Nú liggi fyrir samkomulag
vegna aukins byggingarréttar og breyttrar nýt-
ingar um kauprétt Félagsbústaða hf. á íbúðum,
kvaðir um leiguíbúðir, um listskreytingar í al-
menningsrými, aðrar kvaðir o.fl.
Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu er aukið
byggingarmagn ofanjarðar á reitunum áætlað
um 137,7 fermetrar. Þá er áætlað að um 3.814
fermetrum af núverandi heimiluðu byggingar-
magni á lóðunum verði breytt úr atvinnu-
húsnæði í íbúðarhúsnæði. Miðað við fyrirliggj-
andi tillögu verða greiðslur fyrir byggingarrétt
og breytta nýtingu krónur 33.194.280. Samið er
um, með tilliti til áforma Reykjavíkurborgar um
félagslega blöndun, að á reitnum verði 15%
íbúða skilgreind sem leiguíbúðir, stúdenta-
íbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búsetu-
réttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Fé-
lagsbústaðir hafa kauprétt 5% íbúða á um-
sömdu föstu verði. Þær íbúðir skulu vera 40-60
fermetrar auk geymslu.
Fram kom í kynningu arkitekta á sínum tíma
að Brautarholt 18 samanstendur af sam-
byggðum byggingum. Upprunalegur hönnuður
er Hannes K. Davíðsson arkitekt. Hornhúsið
Brautarholt 20 er byggt árið 1952 með viðbygg-
ingu frá 1973. Upprunalegur hönnuður var Gísli
Halldórsson arkitekt en að þeim seinni Jóhann-
es Friðjónsson arkitekt. Líkt og í Brautarholti
18 er húsið hækkað um eina hæð og byggð inn-
dregin 5. hæð ofan á miðju þess.
Félagið LL09 ehf. var stofnað 2014 og var í
eigu Upphafs fasteignafélags, dótturfélags
Gamma.
Fram kemur á vefnum ismus.is að veitinga-
mennirnir Ragnar Jónsson og Baldvin Guð-
mundsson hafi opnað hinn 11. september 1945
skemmtistaðinn Þórscafé á annarri hæð stór-
hýsis á Hverfisgötu 116 við Hlemmtorg. Nýja
Þórscafé í Brautarholti var opnað 22. október
1958 og lék KK-sextett fyrir dansi og Elly Vil-
hjálms og Ragnar Bjarnason sungu með hljóm-
sveitinni. Staðnum var lokað árið 1991.
Þórscafé verður breytt í íbúðir
Engin starfsemi hefur
verið í húsunum undanfar-
in ár og þau í niðurníðslu
Morgunblaðið/sisi
Brautarholt 18-20 Húsin hafa látið verulega
á sjá eins og sjá má. Nú stendur til að innrétta
64 íbúðir í þessum húsum á næstu árum.
Engin jogging jól í ár
Við hreinsum sparifötin
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 STOFNAÐ 1953