Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.
Áratug
a
reynsla
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Gítarleikarinn Mikael Máni Ás-
mundsson hefur nú gefið út plötu
með tríói sínu Sólstöðum sem auk
hans skipa einn efnilegasti píanisti
Hollands, Floris Kappeyne, og einn
efnilegasti
kontrabassaleik-
ari Sviss, Pierre
Balda. Platan er
samnefnd sveit-
inni og er forsaga
tríósins sú að
þegar Mikael stundaði nám í djass-
gítarleik í Amsterdam tók hann eftir
því að fólk frá ólíkum löndum upp-
lifði tónlist á ólíkan hátt og einnig að
forgangsröðun í tónlist var ólík eftir
þjóðerni. Í náminu kynntist Mikael
þeim Kappeyne og Balda og eiga fé-
lagarnir þrír sameiginlegt að upplifa
tónlist með ólíkum hætti og hefur
þeim í sameiningu tekist að finna
sinn hljóm.
Fallegra á íslensku
Smekkleysa gefur plötuna út en
hún var tekin upp í einu herbergi
með fjórum míkrafónum og því engu
hægt að breyta í eftirvinnslu. Tón-
listin fékk því að standa eins og hún
var flutt. Lagasmíðarnar eru allar
eftir Mikael og samdi hann lögin
með hljóðfærin þrjú í huga, þ.e. raf-
gítar, píanó og kontrabassa. Er af-
urðin í tilkynningu skilgreind sem
kammerdjass og er spunakafla að
finna í lögunum.
Hvað nafn tríósins varðar segir
Mikael að upphaflega hafi það átt að
heita Soon there will be sun. „Það
átti að tákna vonina þegar íslenska
sumrið er að byrja, þá kemur tímabil
þar sem er bara sól og nafnið átti að
vera um það. En þetta er mjög langt
nafn á hljómsveit og þá fórum við að
hugsa hvað gæti endurspeglað sömu
tilfinningu í færri orðum og þá kom
píanóleikarinn með Solstice en við
vildum hafa það sérstakara. Hann
spurði þá hvert orðið væri á íslensku
og okkur fannst það öllum flottara á
íslensku en á ensku,“ útskýrir Mika-
el.
Villur hluti af sjarmanum
„Við vildum hafa þetta „live“ og
þessi tónlist er næst því að vera
djass. Gömlu djassupptökurnar voru
oft teknar upp í einu herbergi. Þegar
maður hlustar á klassísku plöturnar,
Kind of Blue og fleiri, heyrir maður
alvega helling af villum og mistök-
um. Það er partur af sjarmanum,“
segir Mikael um upptökuaðferðina.
– Þú samdir öll lögin á plötunni.
Eru þau ólík þeim sem þú hefur áður
samið?
„Já, ég myndi segja það. Dálítið af
þeim samdi ég í BA-námi í Amster-
dam 2014-18. Þetta eru lög sem ég
var að semja þá og endurspegla
þann tíma og haldast í hendur við
vináttu okkar Pierres sérstaklega
því við vorum saman í hljómsveitinni
áður en píanóleikarinn bættist við.
Við vorum mikið að vinna þetta sam-
an þannig að þótt lögin séu eftir mig
breyttust þau mikið með þeim. Auð-
vitað breytist spunatónlist með
spunanum en laglínan, hljómagang-
urinn og stemningin kemur mikið til
frá okkur öllum,“ svarar Mikael.
Línulegri djass
Tónlistin er skilgreind sem
kammerdjass og segir Mikael skil-
greininguna komna frá kennara
hans í náminu í Amsterdam, Jesse
van Ruller, einum fremsta djass-
gítarleikara heims. „Hann er með
grúppu sem er með gítar, bassa og
bassaklarinetti. Þetta er trommu-
laus tónlist og formin í djasstónlist
eru venjulega hringlaga, sama form
sem er endurtekið aftur og aftur en í
þessari tónlist, kammerdjassi, er
þetta línulegra, eins og söguþráður.
Það er ekki alltaf sami parturinn sí-
endurtekinn og breytist bara með
spunanum,“ útskýrir Mikael.
Hvað útgáfuformið varðar er plat-
an fáanleg stafrænt og í formi
geisladisks en ekki á vínil. „Við
sjáum hvað framtíðin ber í skauti
sér,“ segir Mikael um mögulega
vínilútgáfu en á netinu er platan að-
gengileg á Bandcamp.
HJLKHJLKHJKLH
Með sól í sinni
Tríóið Sólstöður gefur út samnefnda
plötu Mikael Máni samdi lögin og
fellur tónlistin í flokk kammerdjass
Samstilltir Mikael Máni Ásmundsson, Pierre Balda og Floris Kappeyne.
Á sjö ára afmæli menningarhússins
Mengis við Óðinsgötu verður í dag,
laugardag, opnuð sýningin Mira!
Orri Jónsson, ljósmyndari og tón-
listarmaður, býður gestum þar að
ganga inn í heim fjölskyldu sinnar í
Mexíkó er hún hreiðraði um sig í
litlu þorpi í Oaxaca-héraði í fjóra
mánuði, með það fyrir augum að
ráðast í tilraunakennt námsverk-
efni, í samstarfi við Mengi. Tilgang-
urinn var að endurhugsa nálgun á
nám, búa til svigrúm til að vera
saman, skapa og upplifa.
Í Mengi gefst nú fólki kostur á að
fá ofurlitla innsýn í þetta verkefni.
Þar má finna hljóðbúta úr sam-
tölum, sýnishorn af myndlist og
dagbókarfærslum, skissur, glósur
og teikningar eftir fjölskylduna.
Opið verður í Mengi á milli kl. 13
og 18. Sóttvarnareglur eru virtar,
það er grímuskylda og mest tíu
manns í einu innandyra.
Eftir lokun sýningarinnar munu
Ólöf Arnalds og Þorleifur Gaukur
Davíðsson leika lög sín fyrir áheyr-
endur og geta forvitnir guðað á
glugga en sjálfir tónleikarnir verða
sendir út á miðvikudaginn kemur.
Sýningin í Mengi verður síðan
opin til jóla frá þriðjudegi til
laugardags kl. 13 til 17.
Námsverkefni fjöl-
skyldu í Mengi
Myndverk Hluti verks á sýningunni.