Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stærstu matvörukeðjurnar á mark- aðnum hafa fjölgað sjálfsafgreiðslu- kössum í ár. Á móti hefur þjónustu- stigið hækkað á öðrum sviðum. Nettó er hluti af Samkaupum. Gunnar Egill Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam- kaupa, segir Nettó hafa opnað fyrstu sjálfsafgreiðsluna haustið 2018. Þær hafi verið orðnar 24 í árslok 2019 en séu nú 68. Með því sé hlutfall sjálfsafgreiðslukassa af heildarfjölda afgreiðslustöðva orðið 30-55%. Spurður hvernig starfsmanna- fjöldi hafi breyst við innleiðingu sjálfsafgreiðslu vísar hann til breyt- inga á verkefnum starfsfólksins. Verja meiri tíma í þjónustu „Störfin hafa færst til en við höf- um ekki fækkað greiddum tímum heldur hafa störfin breyst og orðið fjölbreyttari. Til dæmis er nú meiri tíma varið í þjónustu við viðskipta- vini, þrif og sótthreinsun, tiltekt net- verslunar og önnur verslunarstörf,“ segir Gunnar Egill um þróunina. Netsalan hafi kallað á fleiri stöðu- gildi en sem nemur þessari fækkun. Ásta Sigríður Fjeldsted, fram- kvæmdastjóri Krónunnar, segir Krónuna hafa sett upp fyrsta sjálfs- afgreiðslukassann árið 2007 í versl- uninni á Bíldshöfða. „Sú tilraun var þó aðeins of snemma á ferðinni og gekk ekki. Í mars 2018 settum við upp núverandi kynslóð af sjálfsafgreiðslukössum í Krónunni Nóatúni og var þeim fjölg- að hratt í kjölfarið,“ segir Ásta. Krónan hafi verið með 80 slíka kassa í árslok 2019 en sé nú með 108 kassa. Það hafi áhrif á töluna að teknar séu með þrjár nýjar búðir. Hlutfall sjálfsafgreiðslukassa af heildarfjölda afgreiðslustöðva hjá Krónunni sé nú 60%. „Við höfum ekki fækkað starfs- fólki samhliða þessari innleiðingu heldur hafa störfin breyst. Nú er vinnudagurinn fjölbreyttari hjá starfsfólki okkar, sem ásamt því að sinna þjónustu við sjálfsafgreiðslu- kassa leiðbeinir viðskiptavinum, sprittar og hjálpar til við önnur störf í verslununum,“ segir Ásta Sigríður. Spurð hvort netsala hafi skapað fleiri störf en sem þessu nemur segir hún Krónuna ekki hafa fækkað fólki, heldur fremur fjölgað í ljósi opnunar snjallverslunar Krónunnar í mars og vegna aukins álags í faraldrinum. Fyrstu kassarnir í júní 2018 Særún Ósk Pálmadóttir, sam- skiptastjóri Haga, tók saman þróunina hjá Bónus og Hagkaup. „Innleiðing á sjálfsafgreiðsluköss- um í matvöruverslunum Haga hófst í júní 2018 þegar fyrstu kassarnir litu dagsins ljós í verslun Bónuss í Smáratorgi. Settir voru upp átta slíkir kassar þar sem áður var einn beltakassi. Á þeim tíma voru belta- kassar 170 talsins og hefur þeim síð- an fækkað hlutfallslega lítið við inn- leiðingu sjálfsafgreiðslu. Hagkaup setti upp sína fyrstu sjálfsafgreiðslu- kassa í Hagkaup í Garðabæ í nóv- ember 2018 og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt í gegnum árin,“ segir Særún Ósk. „Nú eru samanlagt 195 sjálfs- afgreiðslukassar í verslunum Hag- kaups og Bónuss og teljast slíkir kassar um 50% af heildarfjölda af- greiðslustöðva í báðum verslunar- keðjum. Verslanir Bónuss eru 31 talsins og verslanir Hagkaups átta. Í hvorugum verslunum hafa stöðugildi eða störf tapast vegna innleiðingar sjálfsafgreiðslukassa þar sem þau störf hafa færst í önnur verk innan verslunar eða á lager. Að auki urðu til eitt til tvö stöðugildi í hverri versl- un við þessa innleiðingu, þ.e. yfir- umsjón og aðstoð við sjálfs- afgreiðslukassa. Markmiðið með innleiðingu sjálfs- afgreiðslukassa í matvöruverslunum Haga var fyrst og fremst að auka og bæta þjónustu við viðskiptavini, flýta afgreiðslu fyrir þá sem kjósa að nota sjálfsafgreiðslu og þannig stytta rað- ir … Eftir að Hagkaup opnaði aftur fyrir netverslun sína fyrr á árinu hafa orðið til fleiri stöðugildi við til- tekt á vörum, bæði matvöru og leik- föngum,“ segir Særún Ósk. Sjálfsafgreiðslan er í örum vexti Morgunblaðið/Eggert Sjálfsafgreiðsla Krónan hóf innleiðingu núverandi tækni í mars 2018.  Matvörukeðjurnar hafa aukið hlutdeild sjálfsafgreiðslu í ár Hlutabréf í bandaríska heimagist- ingarvefnum Airbnb, sem margir Ís- lendingar nota og þekkja, meira en tvöfölduðust í verði þegar þau voru skráð á markað í Bandaríkjunum í fyrradag. Útboðsgengið var 68 bandaríkjadalir á hlut, en verðið skaust upp í 146 í fyrstu viðskiptum. Fyrirtækið er nú álíka verðmætt og bókunarrisinn Booking.com. Mark- aðsvirði beggja fyrirtækja er nálægt 90 milljörðum dala, eða jafnvirði ríf- lega 11 þúsund milljarða króna. Til samanburðar má nefna að keppinautur Airbnb, bókunarsíðan Expedia, er 17,5 milljarðar dala að markaðsvirði. Þá er Airbnb mun verðmætara en þekktar hótelkeðjur eins og Marriott, stærsta hótelkeðja í heimi, og Hilton, en þær eru metn- ar á 41,5 og 30 milljarða dala. Annað ferðaþjónustufyrirtæki, bandaríska flugfélagið Delta Air Lines, er metið á 26,5 milljarða dala. Gott gengi útboðsins hefur vakið athygli á tíma þar sem heimsfar- aldur stendur yfir, og ferðageirinn hefur þolað þung högg. Airbnb hefur ekki farið varhluta af ástandinu, og réðst í blóðugan niðurskurð. Það náði vopnum sínum að hluta þegar leið á árið, er það beindi athygli við- skiptavina að gistingu í nær- umhverfinu, þar sem hægt var að dvelja í sóttkví, eða flýja stórborg- ina. Airbnb tók flugið  Tvöfaldaðist í verði á fyrsta degi AFP Markaður Útboðsgengið var 68. 12. desember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.37 Sterlingspund 169.37 Kanadadalur 99.83 Dönsk króna 20.733 Norsk króna 14.42 Sænsk króna 15.07 Svissn. franki 143.44 Japanskt jen 1.2195 SDR 182.74 Evra 154.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.7019 Hrávöruverð Gull 1834.2 ($/únsa) Ál 2010.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.0 ($/fatið) Brent Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Birtm eð fyrirvara um m ynd-og textabrengl 1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020 benni.is Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Bílasala Suðurnesja Sími: 420 3330 Selfoss Fossnes A Ib bílar Sími: 480 8080 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2000 ÞÚ VINNUR TVÖFALT FYRIR ÁRAMÓT! O CO V KK F YL G J AE T R ARDE PEL MBO 1. Skattalegt hagræði fyrir árið sem er að líða 2. Vetrardekk fylgja, nelgd eða ónelgd Opel Combo Van – Essentia Tilboðsverð 2 kr. án vsk. Opel Vivaro Cargo - L1 Tilboðsverð kr. án vsk. Opel Vivaro Combi - 6 manna Tilboðsverð kr. m/vsk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.