Morgunblaðið - 12.12.2020, Page 33

Morgunblaðið - 12.12.2020, Page 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Eitt mikilvægasta verkefni sveitar- stjórna felst í því að skapa íbúum sínum skilyrði fyrir upp- byggingu á atvinnu- og íbúðarhúsnæði. Þetta er gert með raunhæfu skipulagi, almennum lóða- úthlutunum og þeim opinberu fram- kvæmdum sveitar- félaga sem slík uppbygging krefst. Sveitarstjórnir sem vanrækja þessa skyldu koma í veg fyrir eðli- lega framþróun síns sveitarfélags og halda í raun fyrir kverkar þess. Þetta hafa ætíð þótt augljós og al- menn sannindi. Glórulaus þéttingarstefna Það er hins vegar ekki að sjá að borgarstjórnarmeirihlutinn sé á sömu skoðun. Í heilan áratug hafa lóðaúthlutanir verið einn sam- felldur hrakfallabálkur í höfuð- borginni. Með aðalskipulaginu sem samþykkt var 2013 var ákveð- ið að nær öll uppbygging færi fram á dýrum þéttingarreitum, miðsvæðis í borginni. Ekki var gert ráð fyrir nýjum úthverfum sem reyndar voru kölluð meinsemd í skipulaginu. Þétting- arreitirnir hafa yfir- leitt verið í eigu banka, sjóða eða millj- arðamæringa sem seldu reitina á hæsta markaðsverði. Það er margfalt verð miðað við þær lóðir sem fyrri borgarstjórnir úthlutuðu almenningi og verktökum úr landi borgarinnar. Þessi stjórnviska hefur haft í för með sér eftirfar- andi afleiðingar: 1. Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík lagðist nánast af fram til 2018. 2. Í Reykjavík margfaldaðist lóða- verð sem hlutfall af íbúðaverði og víða tífaldaðist það, úr 4% í 40%. 3. Borgarstjórn hannaði og fór fyrir verðsprengju á íbúðum og á leigumarkaði frá 2014. Þar með var ungu fólki gert ókleift að kaupa eða leigja íbúðar- húsnæði í Reykjavík. 4. Þessi þéttingarstefna snerist því upp í andhverfu sína: meiri dreifingu byggðar hjá ungu fólki, úr Reykjavík og í nágrannasveitarfélög, en dæmi eru um í sögu Reykjavíkur, allt frá Akranesi til Selfoss og Suð- urnesja. 5. Þessi dreifing byggðar marg- faldaði svo vegalengdir fólks milli heimilis og vinnu, lengdi þar með ferðatíma og jók umferðarþunga og umferð- armengun. Kosningabæklingur í boði borgarbúa Svona trakteringar hafa það náttúrlega í för með sér að borg- arstjóri þarf árlega að láta semja, hanna, prenta og dreifa fyrir sig kosningabæklingi um „fast- eignaþróun í Reykjavík“. Sá nýj- asti ber yfirskriftina Uppbygging íbúða í borginni og Græna planið kom út í október sl. í 63.500 ein- tökum og kostaði þrettán millj- ónir. En hver borgar svo brúsann? Jú, borgarbúar. Ósannindi borgarstjóra Samkvæmt húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar hefði þurft á síðustu árum og þarf á næstu ár- um að byggja eitt þúsund nýjar íbúðir í borginni árlega. Borgar- stjóri hefur oft látið hafa það eftir sér að eitt þúsund íbúðir hafi ver- ið byggðar í Reykjavík á síðustu fimm árum. Þetta eru ósannindi. Hið rétta er að 533 íbúðir hafa verið byggðar að meðaltali í Reykjavík á sl. sex árum sam- kvæmt tölum borgarinnar sjálfrar. Þúsund íbúða markið hefur aðeins einu sinni náðst á sl. sex árum. Þá eru núna mun færri íbúðir í bygg- ingu í Reykjavík en þörf er á sam- kvæmt gögnum borgarinnar. Ein- göngu 443 íbúðir eru skráðar á fokheldisstigi að mati byggingar- fulltrúa. Núverandi gat í áætlun borgarinnar hljóðar því að minnsta kosti upp á 4.000 íbúðir. Og enn neitar borgarstjóri ungu fólki um húsnæði í borginni, en að mati Samtaka iðnaðarins eru ný- byggðar íbúðir í Reykjavík of dýr- ar til að uppfylla skilyrði hlut- deildarlána ríkisins. Lóðir fyrir fólk og fyrirtæki Ekki tekur svo betra við þegar hugað er að lóðum fyrir atvinnu- húsnæði. Á undanförnum árum hafa stofnanir og reykvísk fyrir- tæki af ýmsum toga ekki séð sér annað fært en að flytja starfsemi sína úr höfuðborginni. Af nýlegum dæmum þar um má nefna Sýslu- manninn á höfuðborgarsvæðinu, Tryggingastofnun og aðalstöðvar Íslandsbanka sem fóru í Kópavog og Hafrannsóknastofnun sem flutti í Hafnarfjörð. Stefna meiri- hlutans um þéttingu byggðar hef- ur þrengt að rótgrónum atvinnu- svæðum og ýtt undir brottflutning. Kostir á uppbygg- ingu innan Reykjavíkur hafa verið takmarkaðir og fáar atvinnulóðir eru þar í boði. Ég mun því leggja fram tillögu í borgarstjórn nk. þriðjudag við síðari umræðu fjár- hagsáætlunar um úthlutun at- vinnulóða fyrir fjölbreytta at- vinnustarfsemi. Auk þess mun ég leggja fram tillögu í borgarstjórn um að fjölgað verði lóðum til út- hlutunar í Úlfarsárdal, uppbygg- ingu í Keldnalandi verði flýtt og lögð drög að íbúðahverfi m.a. í Geldinganesi. Slíkar lóðir yrðu á hagstæðu verði, undir fjölbreyttar gerðir íbúðarhúsnæðis. Þannig gæfist ungu fólki aftur tækifæri til að koma þaki yfir höfuðið í Reykjavík. Fleiri lóðir – ódýrara húsnæði Eftir Mörtu Guðjónsdóttur Marta Guðjónsdóttir » Borgarstjóri hefur oft látið hafa það eft- ir sér að eitt þúsund íbúðir hafi verið byggð- ar í Reykjavík á síðustu fimm árum. Þetta eru ósannindi. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Covid-19- faraldurinn kemur mismunandi niður á hinum ýmsu starfs- greinum hér á landi. Við höfum séð í fjöl- miðlum hversu alvar- legar efnahagslegar afleiðingar hann hef- ur haft, t.a.m. í greinum tengdum ferðaþjónustu. Í til- felli hjúkrunarfræðinga eru þær frekar tengdar því gríðarlega álagi sem hefur verið á heilbrigð- iskerfinu. Hjúkrunarfræðingar hafa lagt mikið á sig til að standa vaktina þetta árið og var álagið þegar mikið fyrir þann tíma. Því burtséð frá faraldrinum hefur ekkert breyst hvað varðar þörf fyrir hjúkrun. Á sama tíma hætt- ir fólk ekkert að veikjast eða slasast, fyrir utan þá sem þegar eru að fá þjónustu og þurfa þess áfram. Staðfest smit af völdum Cov- id-19 er á sjötta þúsund á Íslandi, ríflega 300 hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús, um 50 á gjör- gæslu og á þriðja tug látist. Við erum enn að kljást við afleiðingar veirunnar og nú eftir þriðju bylgju faraldursins dylst engum mikilvægi hjúkrunarfræðinga í þessari baráttu. Þeir taka ákvarð- anir um sýnatöku, smitrakningu, sóttkví, hjúkra þeim sem veikjast af veirunni og fylgja eftir að loknum veikindum, auk annarra hefðbundinna hjúkrunarstarfa. Í fyrstu bylgju faraldursins voru tæplega 300 hjúkrunarfræðingar skráðir í bakvarðasveitirnar og hátt í 100 í þeirri þriðju. Auk þess hafa hjúkrunarfræðingar bætt á sig mikilli vinnu til að tak- ast á við afleiðingar faraldursins og forgangsraðað þannig vinnunni fram fyrir sig sjálfa og fjölskyldu. Langvarandi álag í starfi er varasamt Samkvæmt upplýsingum frá Al- þjóðaráði hjúkrunarfræðinga hafa um 1.500 hjúkrunarfræðingar frá 44 löndum látist af völdum far- aldursins. Til allra heilla hefur enginn hjúkrunarfræðingur látist hér á landi en tugir þeirra veikst og einhverjir glíma við alvarleg eftirköst. Í nýlegri könnun á veg- um Evrópusamtaka hjúkr- unarfélaga um áhrif Covid-19 á stétt kom í ljós að helsta áhyggjuefni hjúkrunarfræðinga er samstöðuleysi innan hverrar þjóðar í að fara eftir sóttvarna- reglum og standa þannig saman gegn veirunni. Þær áhyggjur eru ekki úr lausu lofti gripnar enda höfum við okkar eigin reynslu af afleiðingum þess þegar fólk slak- ar á sóttvörnum og við endað í grafalvarlegri stöðu með yfirþan- ið heilbrigðiskerfi og sorglegar afleiðingar. Þreyta meðal hjúkrunarfræð- inga er farin að gera vart við sig, bæði líkamlega og andlega. Vinnuloturnar hafa tekið sinn toll og það hefur verið lítið svigrúm til að gefa fólki verðskuldað frí til að hvíla sig. Langvarandi álag í starfi getur haft margvíslegar afleiðingar og þegar eru farin að sjást merki um kulnun í starfi. Áðurnefnd Evrópukönnun leiddi jafnframt í ljós áhyggjur hjúkrunarfræðinga vegna skorts- ins á hjúkrunarfræðingum og kulnunar í starfi. Hjúkrunar- fræðingar hafa sýnt ótrúlegan sveigjanleika í störfum í faraldr- inum, m.a. með því að breyta um vinnuumhverfi og vinnu- fyrirkomulag. Um leið og sveigj- anleikinn ber vott um mikinn styrk, þá eru líka vísbendingar um að sveigjanleikinn auki á of- þreytu og líkur á kulnun í starfi. Við megum ekki við því að hjúkr- unarfræðingar hrekist úr starfi vegna álags en því miður hefur það verið raunin, t.a.m. í Frakk- landi. Hjúkrunarfræðingar eru lífsnauðsynlegir í heilbrigðiskerf- inu. Leggi sitt af mörkum í seinni hálfleik Við þurfum að standa vörð um hjúkrunarfræðinga og annað heil- brigðisstarfsfólk sem er í framlín- unni og setur sjálft sig í hættu í sínum störfum, því faraldurinn ógnar bæði þeim sem þurfa á þjónustunni að halda og þeim sem veita hana. Nauðsynlegt er að vinnuveitendur hugi strax að stuðningi við hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk til að draga úr líkum á langvarandi áhrifum og afleiðingum Covid-19- faraldursins. Á meðan heilbrigðisstarfsfólk stendur vaktina þá hvetjum við lands- menn til að framfylgja persónu- bundnum sóttvörnum og leggja þar með sitt af mörkum. Þrátt fyrir að við séum komin í seinni hálfleik er þessu aldeilis ekki lok- ið og við verðum að halda þetta út saman. Nú styttist í hátíðirnar og ætla má að flestir vilji eyða þeim með fjölskyldu og vinum, fremur en að vera þeim fjarri í sóttkví eða einangrun. Lítum í eigin barm, vöndum okkur og umfram allt – förum varlega nú sem aldrei fyrr. Vöndum okkur og förum varlega Eftir Guðbjörgu Pálsdóttur og Höllu Eiríksdóttur Guðbjörg Pálsdóttir »Nauðsynlegt er að vinnuveitendur hugi strax að stuðningi við hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk til að draga úr líkum á lang- varandi áhrifum og af- leiðingum Covid-19- faraldursins. Guðbjörg er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Halla er varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Halla Eiríksdóttir Fyrir nokkru var nýtt hættumat Veð- urstofu Íslands fyrir Flateyri gert opinbert. Í þeirri matsgerð kem- ur fram að hættan er meiri en áður var gert ráð fyrir. Nú er gert ráð fyrir að yfirflæði og snjódýpt eftir snjó- flóð gæti orðið meiri en áður var gert ráð fyrir við hönnun stoðvirkja á svæðinu. Þá eru 30 hús þar talin vera innan hættusvæðis C. Þetta eru 30 heimili sem búa við þessa hættu við vissar aðstæður. Enn liggur ekki fyrir niðurstaða áhættumats á Ísa- firði, Bíldudal, Siglufirði, Ólafsfirði og Neskaupstað, en þar gæti niður- staðan reynst sambærileg. Ef svo verður þá horfum við upp á alvar- lega stöðu í öryggismálum þessara samfélaga. Lærum af sögunni 20. desember 1974 féllu mann- skæð snjóflóð í Neskaupstað. Þau snjóflóð tóku tólf mannslíf og lögðu atvinnulíf byggðarinnar í rúst vegna alvarlegra skemmda á atvinnumann- virkjum. Dagana áður hafði illviðri herjað á landið. Þessi staðreynd átti eftir að endurtaka sig tveimur ára- tugum síðar. Árið 1995 féllu mann- skæð snjóflóð á Vestfjörðum. Það ár situr fast í minningu landsmanna, við vildum og ætluðum okkur að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. Óefnd loforð Eftir snjóflóðið í Flateyri árið 1995 lofuðu stjórnvöld íbúum slíkra svæða fullkomnum stoðvirkjum og vörnum. Landsmönnum var lofað að slík eyðilegging yrði ekki aftur á þeim svæðum sem geta orðið undir í snjóflóðum og mikil vinna fór af stað. Varnargarðar voru reistir víða og öryggi varnargarðanna á Flateyri átti að standast álíka áhlaup en svo kom annað í ljós. Samkvæmt hættu- mati Veðurstofunnar frá árinu 2004 voru engin hús á hættusvæði C eftir að varnargarðarnir voru reistir fyrir ofan bæinn. Tvö snjóflóð í janúar fyrir ofan þorpið og það þriðja í Súg- andafirði olli miklum skemmdum. Varnar- garðarnir stóðust ekki prófið að fullu. Góðu fréttirnar voru að ekkert mannfall varð vegna flóðanna, en þeim fylgdi mikil eyði- legging á svæðinu með tilfallandi skemmdum á atvinnumannvirkjum og bátum. Þetta eru ekki minniháttar skemmdir heldur voru þær mestmegnis alvar- legar og jafnvel óaft- urkræfar. Slíkar skemmdir höfðu mikil áhrif á líf þeirra sem búa á svæðinu. Áhyggjur af mannvirkjum og heimilum eiga ekki að herja á íbúa þessara svæða. Samkvæmt nú- verandi reglum ofanflóðasjóðs skal einungis gera ráð fyrir að verja íbúðabyggð en ekki hafnir eða önnur atvinnumannvirki því það á að ein- beita sér að því að verja líf. Líf sam- félagsins grundvallast á atvinnulíf- inu líka og því þarf að huga að því að verja það líka. Klárum verkefnið Það hlýtur að liggja í augum uppi að nauðsynlegt er að klára uppbygg- ingu fullkominna varnargarða við byggðir sem eiga á hættu að lenda undir snjóflóði. Heimili og lifibrauð fólks eiga ekki að sitja á hakanum á meðan taldir eru aurar. Við megum ekki sofna aftur á verðinum og vakna aftur við þær fréttir að snjó- flóð hafi grandað heimili. Á þessum svæðum búa einstaklingar sem verða að geta treyst á það að stoð- virkin haldi þegar á reynir. Við verð- um að tryggja öryggi þeirra og það strax. Klárum þetta verkefni, sem hefur legið fyrir síðan árið 1995. Styrkjum varnir – efnum áralöng loforð Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur » Það liggur í augum uppi að nauðsynlegt er að klára uppbygg- ingu fullkominna varn- argarða við byggðir sem eiga á hættu að lenda undir snjóflóði. Halla Signý Kristjánsdóttir Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.