Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 52

Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 52
52 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 England Leeds – West Ham................................... 1:2 Staðan: Tottenham 11 7 3 1 23:9 24 Liverpool 11 7 3 1 26:17 24 Chelsea 11 6 4 1 25:11 22 Leicester 11 7 0 4 21:15 21 West Ham 12 6 2 4 20:15 20 Southampton 11 6 2 3 21:17 20 Manch.Utd 10 6 1 3 19:17 19 Manch.City 10 5 3 2 17:11 18 Everton 11 5 2 4 20:18 17 Wolves 11 5 2 4 11:15 17 Crystal Palace 11 5 1 5 17:16 16 Aston Villa 9 5 0 4 20:13 15 Newcastle 10 4 2 4 12:15 14 Leeds 12 4 2 6 17:22 14 Arsenal 11 4 1 6 10:14 13 Brighton 11 2 4 5 15:18 10 Fulham 11 2 1 8 11:21 7 Burnley 10 1 3 6 5:18 6 WBA 11 1 3 7 8:23 6 Sheffield Utd 11 0 1 10 5:18 1 Holland B-deild: Jong Utrecht – Excelsior........................ 3:2  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior og skoraði síðara markið úr vítaspyrnu. Oss – Jong PSV ........................................ 3:2  Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á eft- ir 64 mínútur hjá Jong PSV og skoraði síð- ara markið. De Graafschap – Jong Ajax.................... 2:2  Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrri hálf- leikinn með Jong Ajax. Ítalía B-deild: Venezia – Monza...................................... 0:2  Óttar Magnús Karlsson var á vara- mannabekk Venezia en Bjarki Steinn Bjarkason var ekki með. Spánn B-deild: Real Oviedo – Tenerife ........................... 4:2  Diego Jóhannesson var á varamanna- bekknum hjá Oviedo. Danmörk B-deild: Viborg – Köge.......................................... 1:1  Patrik Sigurður Gunnarsson stóð í marki Viborg og var valinn maður leiksins.  EM kvenna Milliriðill 1 í Herning: Frakkland – Rússland ......................... 28:28 Danmörk – Svíþjóð............................... 24:22 Staðan: Rússland 4 3 1 0 113:99 7 Frakkland 4 3 1 0 101:96 7 Danmörk 3 2 0 1 72:64 4 Svíþjóð 3 0 1 2 71:77 1 Spánn 3 0 1 2 70:80 1 Svartfjallaland 3 0 0 3 65:76 0 Þýskaland B-deild: Aue – Grosswallstadt.......................... 27:27  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 14/2 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Danmörk Kolding – Mors .................................... 28:27  Ágúst Elí Björgvinsson varði eitt skot í marki Kolding og var með 13% markvörslu. Frakkland Toulouse – Aix ..................................... 28:35  Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Aix. B-deild: Nice – Valence ..................................... 30:27  Grétar Ari Guðjónsson varði 14/1 skot í marki Nice og var með 35% markvörslu. Svíþjóð Kristianstad – Hallby.......................... 38:19  Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Guð- mundsson þrjú. Ungverjaland Eger – Pick Szeged............................. 21:41  Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki með Pick Szeged vegna meiðsla.   Spánn Andorra – Zaragoza ........................... 83:98  Haukur Helgi Pálsson skoraði átta stig, gaf fjórar stoðsendingar og tók þrjú frá- köst fyrir Andorra.  Tryggvi Snær Hlinason skoraði níu stig, tók þrjú fráköst og varði skot fyrir Zara- goza. Litháen Alytaus Dzukija – Siaulai................ frestað  Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar í Siaulai voru sendir í sóttkví í gær.   VIÐTAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Helgi Kolviðsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands og aðstoðar- þjálfari karlalandsliðsins frá 2016 til 2018, kveðst ætla að skoða næstu skref sín á ferlinum í rólegheitum um jólin eftir að hafa hætt störfum með landslið Liechtenstein á dög- unum. „Ég er reyndar samningsbundinn til áramóta þannig að mér liggur ekkert á og ég gæti þess vegna beðið rólegur til vorsins. En auðvitað er ég aðeins farinn að líta í kringum mig. Umboðsmaðurinn er að skoða hvað sé í boði, símtölin eru orðin mörg úr ýmsum áttum og nokkur félagslið hérna í nágrenninu eru búin að hafa samband. En vegna kórónuveiru- ástandsins eru þjálfarastörf hjá fé- lagsliðum í augnablikinu lítið annað en slökkviliðsstörf,“ sagði Helgi við Morgunblaðið en hann býr syðst í Þýskalandi, við landamæri Sviss og Austurríkis, og hefur þjálfað félags- lið í Austurríki og Þýskalandi á und- anförnum árum ásamt því að stýra karlaliði Liechtenstein í tvö ár. Ótrúlegar aðstæður í haust Hann er ánægður með tímann í Liechtenstein, sem er í aðeins níutíu mínútna akstursfjarlægð frá heimili hans í Þýskalandi. „Þó ég væri með marga áhuga- menn í liðinu þá stóðum við vel í stórum þjóðum í undankeppni EM, gerðum m.a. jafntefli í Grikklandi, og hefðum síðan átt að vinna okkar riðil í Þjóðadeildinni. Vandamálið var að ég var að stórum hluta með áhugamenn sem fengu ekki að spila fótbolta í átta mánuði áður en kom að landsleikjunum í haust, og síðan voru ótrúlegar aðstæður í kringum leikina. Ég missti út sjö til ellefu menn fyrir hvern leik, þeir máttu ekki ferðast frá t.d. Sviss eða Aust- urríki, og í einum leikjanna var ég bara með 15 manna hóp, þar af sex leikmenn úr 21-árs landsliðinu. Það búa færri í Liechtenstein en í Kópavogi svo úrvalið af leikmönnum var ekki mikið. Við gerðum jafntefli við Gíbraltar í lokaleiknum en hefð- um farið upp með því að vinna hann. Okkur vantaði of marga góða leik- menn til að geta klárað það dæmi. En ég var búinn að ræða við for- ráðamenn Liechtenstein strax í september um að ég myndi hætta um áramót því mér fannst ég verða að taka næsta skref. Við starfinu tekur Martin Stocklasa, þjálfari 21- árs landsliðsins, sem sjálfur spilaði 113 landsleiki. Það eru frábær tíma- mót fyrir Liechtenstein því hann er fyrsti heimamaðurinn í sögunni sem tekur við starfi landsliðsþjálfara. Þetta var allt á jákvæðum nótum og mikil reynsla að starfa með þetta lið,“ sagði Helgi. Ekki til stærra verkefni en að þjálfa eigið landslið Hann vann með íslensku lands- liðsþjálfurunum frá 2016 til 2018, fyrst þegar hann kom Lars Lager- bäck og Heimi Hallgrímssyni til að- stoðar á EM í Frakklandi, og var síð- an í framhaldi af því aðstoðarþjálfari liðsins með Heimi í undankeppni HM og í lokakeppninni í Rússlandi. Aðspurður hvort hann væri til í að starfa í kringum liðið á ný og jafnvel taka við sem landsliðsþjálfari nú þegar Erik Hamrén er hættur og KSÍ leitar arftaka hans sagði Helgi að íslenska landsliðið stæði alltaf hjarta sér næst. „Mér fannst Arnar Þór Viðarsson svara samskonar spurningu frábær- lega á dögunum. Það er ekki til stærra verkefni en að þjálfa eigið landslið, hjartað er alltaf þar. Mínar bestu stundir á ferlinum voru að vera landsliðsmaður Íslands og síð- an hluti af þjálfarateyminu. Ef KSÍ þarf á minni aðstoð að halda í ein- hverju hlutverki þá er ég til í að skoða allt. Það var gríðarlega skemmtilegt að koma liðinu til að- stoðar á EM í Frakkklandi og fá tækifæri til að horfa yfir öxlina á Lars Lagerbäck og læra af honum, og í framhaldi af því að starfa við hlið Heimis í undankeppni HM og fara með liðinu til Rússlands. Þetta var frábær reynsla sem ég nýtti mér vel sem landsliðsþjálfari Liechtenstein. Þar var ég ekki með bestu fótbolta- menn í heimi en við vorum vel skipu- lagðir og nýttum vel einstaklinga sem höfðu mikil gæði, á svipaðan hátt og íslenska landsliðið hefur gert á undanförnum árum,“ sagði Helgi. Gríðarleg reynsla og björt framtíð Hann telur að þó Ísland hafi ekki náð að komast á EM eftir tapið í Ungverjalandi sé engin ástæða til svartsýni, þvert á móti, og segir ekki þörf á róttækum aðgerðum þó þann- ig hafi farið. „Í liðinu er fullt af strákum á besta aldri, í kringum þrítugt, og þeir búa yfir gríðarlegri reynslu hvað varðar varnarleik og skipulag. Á sama tíma eigum við fjölmarga yngri stráka sem eru komnir í atvinnumennsku í Evrópu og geta komið smám saman inn í liðið. Árangur 21-árs landsliðs- ins hjá Arnari og Eiði Smára sýnir hversu björt framtíðin er. Þó þeir strákar verði í úrslitakeppni í mars, á sama tíma og A-landsliðið byrjar undankeppni fyrir HM, á það ekki að vera vandamál því breiddin er mik- il.“ Yrði frábært að byrja á stigi í Þýskalandi Helgi telur að Ísland eigi ágætis möguleika í undanriðli HM þar sem mótherjarnir eru Þýskaland, Rúm- enía, Norður-Makedónía, Armenía og Liechtenstein. „Við erum ekki í auðveldum riðli og það er erfiðara að komast á HM en EM þar sem bara efsta sætið veit- ir öruggan keppnisrétt. Öll liðin í þessum riðli eru þannig að þau geta tekið stig hvert af öðru. Þýskaland á hinsvegar að vinna riðilinn, þó ekk- ert sé öruggt í fótbolta, en þessi riðill er lúmskur. Það verður erfitt að hefja undan- keppnina á útileik í Þýskalandi og fara svo þaðan til Armeníu og Liech- tenstein, en pressan er öll á Þjóð- verjunum. Umræðan hjá þeim er þannig að þeir verða að ná í góð úr- slit í hverjum leik. Það er óöryggi hjá þeim sem stendur og það er allt hægt í fyrsta leik. Það yrði gríðar- lega sterkt að byrja á að sækja stig til Þýskalands og byggja síðan á því, rétt eins og við gerðum með því að sækja stig til Úkraínu í fyrsta leikn- um fyrir HM 2018,“ sagði Helgi Kol- viðsson. Hjartað er alltaf hjá íslenska landsliðinu  Helgi Kolviðsson skoðar næstu skref á ferlinum eftir tvö ár sem landsliðs- þjálfari Liechtenstein  Væri slökkviliðsstarf að taka við félagsliði núna Morgunblaðið/Eggert Landsliðið Helgi Kolviðsson segir leikmönnum til á æfingu íslenska landsliðsins í Kabardinka í Rússlandi þegar lið- ið var á heimsmeistaramótinu. Þar var Helgi aðstoðarþjálfari liðsins en hann tók síðan við liði Liechtenstein. Knattspyrnukonan reynda Hólm- fríður Magnúsdóttir er gengin til liðs við Selfoss á ný eftir tæplega þriggja mánaða dvöl hjá sínu gamla félagi í Noregi, Avaldsnes. Hún hafði áður leikið með Selfyssingum frá vorinu 2019. Hólmfríður er 36 ára og næstleikjahæsta knatt- spyrnukona Íslands í deildakeppni, á eftir Katrínu Jónsdóttur, en hún hef- ur leikið 323 deildaleiki á ferlinum og skorað í þeim 186 mörk. Þar af eru 156 leikir og 122 mörk í íslensku úrvalsdeildinni. Þá hefur hún skorað 37 mörk í 113 landsleikjum. Hólmfríður komin aftur á Selfoss Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Selfoss Hólmfríður Magnúsdóttir heldur áfram á næsta tímabili. Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, er í 24. sæti yfir bestu knattspyrnukonur heims að mati sérfræðinga enska blaðsins The Guardian. Árlega birtir The Guardian bestu 100 leikmenn heims samkvæmt atkvæðagreiðslu 88 sér- fræðinga víðsvegar að úr heim- inum. Sara hefur verið á þessum lista undanfarin ár en tekur nú stórt stökk frá árinu 2019 þegar hún var í 52. sæti. Í gær var einnig tilkynnt að Sara og Gylfi Þór Sig- urðsson hefðu verið valinn knatt- spyrnufólk ársins hjá KSÍ. Sara upp í 24. sæti í heiminum Ljósmynd/@UWCL Sigursæl Sara Björk Gunnarsdóttir varð m.a. Evrópumeistari 2020.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.