Morgunblaðið - 12.12.2020, Page 60

Morgunblaðið - 12.12.2020, Page 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Þar sem heimurinn bráðnar Ímyndaðu þér, að vakna snemma morguns í nyrstu byggð heims, um hávetur í svarta- myrkri. Spangól einmana hunds rýfur þögn- ina. Úti er fimbulkuldi. Það er eins og þorpið sofi. Enginn á ferli. Spangólið stigmagnast þegar hundarnir í þorpinu vakna hver af öðrum. Trega- blandið spangól grænlenska sleða- hundsins hefur ein- hvern óræðan sjarma sem hefur róandi áhrif. Í trega- söngnum býr saga einhverra mestu hetja norðurslóða, ferfætlinga sem gerðu mönnum kleift að komast á báða póla jarðarinnar. Harðgert dýr sem á ögurstundu kom veiðimönnum heim í öruggt skjól gegnum heimskautastorma. Söngur hundanna á Græn- landi hefur ómað í gegnum aldirnar. Ef til vill leynist boðskapur í tregablandinni hundgánni fyrir heiminn að hlusta á; heimkynni hans eru að breytast. Dagurinn er stuttur. Það tírir varla af degi í þessari undraveröld fimbulkuldans. Myrkrið umlykur allt. Sögur veiðimanna af svaðilförum á norðurhjara fljúga á milli þeirra. Sumar eldri sögur af veiðimönnum hafa dáið með þeim sem gengnir eru. Aðrar öðlast líf að nýju við takfastan slátt inúítatrommunnar á síð- kvöldum. Inn á milli leynast sögur sem eru heiminum framandi, perlur sem fáir hafa heyrt og eru hluti af leyndardómum norð- urslóða. Í víðáttu Grænlands eru staðir sem kalla fram þá tilfinningu að maður sé einn í heim- inum, staðir sem fáir eða jafnvel enginn hefur stigið á fæti. Kyrrðin er yfirþyrmandi. Auðnin virðist endalaus. Það er engu líkt að horfa eftir fjallstindum á þessa undraveröld, niður í djúpa dali og firði þar sem hafísinn hefur læst krumlu sinni og umlykur allt, eins langt og augað eygir. Þessi heimur óbyggðanna lætur engan ósnortinn sem upplifir þá kyrrð og krafta sem í landinu búa. Að anda að sér tæru heimskautaloftinu er eins og að anda að sér annarri lofttegund. Ferskt og kalt loftið gefur einhvern aukakraft. En hætturnar leynast víða á hafísnum. Lífið á norðurslóðum hefur aldrei verið dans á rósum. Komdu með í ferðalag út á hafísinn á hunda- sleðum um nyrstu byggðir heims í Thule og um Scoresbysund með veiðimönnum. Reynum að lifa okkur inn í heim kuldans sem flestum er framandi og heillandi í senn. Förum í siglingu á lítilli jullu, milli ísjaka á firði sem var frosinn yfir vetrarmánuðina fyrir tuttugu árum en er nú opið haf með ísjökum sem fljóta um eftir því hvernig vindar blása. Upplifum svaðilfarir veiðimannanna og fylgjumst með hetjum norð- urslóða berjast fyrir lífi sínu í illviðrum sem fæstir venjulegir menn mundu lifa af. Förum vítt og breitt um Grænland á hundasleðum og kynnumst lífinu í landi þessa harðgera fólks sem horfir á heimkynni sín breytast hratt þeg- ar jökullinn og hafísinn hopa. Skyggnumst inn í heim sleðahundsins sem er besti vinur sem hægt er að hugsa sér á ög- urstundu. Þegar allt um þrýtur og öll sund virðast lokuð þá bregst hann ekki og dregur sleða veiðimannsins heim þótt ekkert sé skyggnið. „Án grænlenska hundsins væri eng- in Inúiti til,“ sagði gömul grænlensk kona sem lifað hafði tímana tvenna. „Hann hefur haldið í okkur lífinu í 4000 ár,“ hélt hún áfram. Allt er í heiminum hverfult. Nú er hund- urinn ekki lengur eins mikilvægur og áður. Vélsleðinn hefur tekið við og hundunum hefur fækkað ásamt veiðimönnunum. Söngur hundanna á Grænlandi Bókarkafli |Ragnar Axelsson hefur myndað líf og lífshætti á Grænlandi fjóra áratugi. Bók- in Hetjur norðurslóða er óður til grænlenska sleðahundsins og sambandsins sem myndast hefur milli manns og hunds í veiðimannasamfélaginu. Auk mynda eru í bókinni sögur veiðimanna af hundum sínum. Ljósmynd/Ragnar Axelsson Hvolpasveit „Án grænlenska hundsins væri enginn Inúíti til,“ sagði gömul grænlensk kona sem lifað hafði tímana tvenna. Hetjur Skjótt skipast veður í lofti og þar sem áður var traustur ís getur hann brotnað í fleka sem gliðna í sundur undan sterkum straumum í hafinu. Þá er engin leið fær nema beint af augum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.