Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 8

Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 8
8 9 og er sérstök áhersla er lögð á að hann vinni sem almennur ráðgjafi en ekki sem trúboði, svo að allir geta notið þjónustu hjá honum án tillits trúarlegs bakgrunns síns. Tillögur starfshópsins verða lagðar fyrir framhaldskirkjuþing í mars nk. Við skulum hafa það hugfast að margt gott er að gerast í kirkjunni okkar. Æskulýðs- samtök þjóðkirkjunnar héldu landsmót sitt um síðustu helgi. Yfirskriftin var „Skapandi landsmót“. Markmiðið var að skoða hvernig þátttakendur geta hlúð að einstaklingnum og eflt sig með því að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn. Þarna voru samankomnir 250 glæsilegir unglingar víðs vegar af landinu og hefur mótið verið öllum til sóma. Það er einnig ánægjulegt að sjá hve margar sóknir eru virkar á samfélagsmiðlunum og á vef kirkjunnar, kirkjan.is en þar eru birtar stuttar fréttir um fjölbreytt starf innan kirkjunnar. Ég vil lýsa ánægju minni yfir öllum þeim jákvæðu og fjölbreyttu fréttum sem við fáum úr kirkjustarfi þjóðkirkjunnar. Þetta skiptir miklu máli og er hvetjandi því margir eru að gera frábæra hluti; skálmöld í barnastarfi, námskeið í gítarleik, ný þýðing á Passíusálmunum, kvöldkirkja, norræn sálmastefna í Skálholti, svo eitthvað sér nefnt. Ég vil þakka starfsfólki biskupsstofu fyrir undirbúning þingsins. Það er von mín að störf okkar á kirkjuþingi verði góð, árangursrík og kirkjunni

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.