Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 13

Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 13
13 skipuleggja söfnun fyrir Bíafra. Fyrsti stjórnarfundur Hjálparstofnunar kirkjunnar var svo haldinn 1. apríl 1970. Nafni stofnunarinnar var breytt í Hjálparstarf kirkjunnar. Hjálparstarf kirkjunnar undirbýr málþing á Grand hótel í Reykjavík á afmælisdaginn, fimmtudaginn 9. janúar, klukkan 16:30-18:30. Ég hvet ykkur öll til að mæta á málþingið en dagskrá þess verður auglýst síðar. Ýmislegt fleira verður gert til að fagna afmælinu á árinu, þannig kemur til dæmis Margt smátt… fréttablað Hjálparstarfs kirkjunnar út í afmælisútgáfu þann 4. apríl 2020. Það er við hæfi á þessum merku tímamótum að kirkjan minni á sérstöðu sinnar eigin stofnunar og að við hvetjum kirkjufólk til að tala máli hennar og leggja henni lið sem slíkrar. Ég mun leggja til við presta að fjalla sérstaklega um Hjálparstarf kirkjunnar í messu sunnudaginn 12. janúar 2020 og að tala máli stofnunarinnar við sem flest tækifæri á afmælisárinu. Mig langar einnig að nefna að öll getum við haldið áfram að styðja starfið persónulega en nú styrkja yfir 2.000 Hjálparliðar Hjálparstarf kirkjunnar með mánaðarlegu framlagi. – Hjálparstarf kirkjunnar er hjálparstarfið okkar! Fjölskylduþjónustan Önnur merk stofnun hefur verið í sama húsi og Hjálparstarfið. Það er fjölskylduþjónusta kirkjunnar. Nú er hún flutt í nýtt húsnæði, hið sama og þjónustumiðstöð biskupsstofu var í síðast liðið ár, í safnaðarheimili þessarar kirkju, Háteigskirkju. Ég þakka sóknarnefnd og starfsfólki kirkjunnar fyrir hve vel var tekið á móti starfsfólki þjónustumiðstöðvarinnar sem nú er flutt í Katrínartún 4 eins og öll starfsemi kirkjuhússins á Laugavegi 31 fyrir utan verslunina Kirkjuhúsið sem flytur í Katrínartún í byrjun næsta árs. Verslunin er enn á Laugaveginum. Fjölskylduþjónustan er hluti af sálgæslustarfi kirkjunnar og þjónar öllu landinu. Öllum er heimilt að leita beint til hennar og sumir koma samkvæmt ábendingu prests eða ann- arra aðila. Í bók sinni Í nærveru kemst sr. Sigfinnur Þorleifsson svo að orði: „Sálgæslan er nokk urs kon ar brúar gerð, tenging á milli Guðs og manns og manns og annars. Hlutverk hennar er að græða, hugga, styrkja, sætta og leiðbeina.“ Prestar landsins veita sálgæslu- þjónustu enda eru þeir á vaktinni alla daga og allar nætur ef þannig stendur á. Engar aðrar fagstéttir veita sálgæslu en sú fræðigrein er fullgild og viðurkennd fræðigrein, en leitar fanga í sálfræði og læknisfræði eins og geðsjúkdómafræði og sálmeðferð. Sálgæslan á sér sterkar rætur úr fortíðinni og hinni fornu arfleið. Sálgæslan byggir á heildstæðum mannskilningi. Manneskjan verður ekki sundurgreind, hún er ein órofa heild, líkami, andi og sál. Allur maðurinn heill. Fyrirmynd sálusorgarans er frelsarinn sjálfur. Í Biblíunni eru margar sögur af sálgæslu Jesú Krists. Ein af þeim er sagan af Miskunnsama Samverjanum sem við þekkjum. Jesús Kristur mætir öllum manneskjum af kærleika og elsku, hann hlustar og dæmir ekki. Sálusorgarinn mætir manneskjunni í þeim aðstæðum sem hún er stödd, oft á brothættum stað þar sem trúnaður milli manna skiptir mestu máli. Sálgæslan fer ekki í manngreiningarálit heldur eru allir jafnir út frá kristnum manngildum. Annað hlutverk fjölskylduþjónustunnar er að veita prestum, djáknum og starfsfólki kirkjunnar handleiðslu. Það er mjög mikilvægt ef prestur eða djákni á að endast í starfi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.