Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 29

Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 29
29 Skálholt – Skálholtsstaður. Biskup Íslands og kirkjuráð hafa forræði um framkvæmdir í Skálholti og starfrækslu Skálholtsstaðar. Skálholtsstaður og Skálholtsskóli hafa verið rekin sem ein rekstrareining síðastliðin ár. Um Skálholt gilda lög nr. 32/1963 um heimild handa ríkisstjórninni til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað og um Skálholtsskóla lög nr. 22/1993. Í lögum um Skálholtsskóla nr. 22/1993 er kveðið á um hlutverk og stjórnun Skálholtsskóla. Kirkjuráð ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri skólans fyrir hönd þjóðkirkjunnar. Samkvæmt samþykkt kirkjuráðs frá 22. febrúar 2012 og starfsreglum um vígslubiskupa ábyrgist vígslubiskup í umboði kirkjuráðs rekstur og starfsemi í Skálholti á grundvelli samþykktrar fjárhagsáætlunar og hefur almennt fyrirsvar vegna Skálholts. Jafnframt er stjórnun Skálholtsskóla í höndum vígslubiskups Skálholtsumdæmis fyrir hönd kirkjuráðs. Kirkjuráð samþykkti á fundi sínum 8. maí sl. að afnema ofangreindar samþykktir. Á fundi kirkjuráðs í Skálholti þann 8. maí sl. var samþykkt að fela stjórn Skálholts að boða til fundar um framtíðarstjórnskipan Skálholts og skila tillögum sínum til kirkjuráðs. Tillögur fundarins voru lagðar fram til kynningar á fundi kirkjuráðs 12. júní sl. Kirkjuráð fagnaða vinnunni, þakkaði fyrir hana og tók undir tillögurnar í megindráttum. Í samræmi við tillögurnar samþykkti kirkjuráð að skipa í framkvæmdastjórn Skálholts og setja henni erindisbréf. Í stjórnina voru eftirtaldir skipaðir: Aðalmenn: Drífa Hjartardóttir, bóndi og forseti kirkjuþings, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hrunaprestakalli, Suðurprófastsdæmi og Sólborg Lilja Steinþórsdóttir, hótelstjóri. Til vara: Þórarinn Þorfinnsson, bóndi á Spóastöðum í Biskupstungum, Olga Eleonora Marcher Egonsdóttir, fjármálastjóri og Árborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi. Kirkjuráð mun í samræmi við tillögurnar setja framkvæmdastjórninni erindisbréf. Kirkjuráð samþykkti einnig að heimila stjórn Skálholts að auglýsa eftir ráðsmanni, enda sé verkefnið að fullu fjármagnað. Aðalmenn í skólaráði eru: sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, formaður, Ásdís Guðmundsdóttir, Háskóla Íslands, Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu. Varamenn: Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri, Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor og Sigurður Sigursveinsson frá Háskólafélagi Suðurlands. – Skálholtsjörðin. Málefni ábúanda á Skálholtsjörðinni hafa verið til umræðu í kirkjuráði en ábúendur hafa sagt upp ábúðinni. Kirkjuráð hefur gert upp við ábúendur og leyst til sín eignir þær sem þeir vildu selja. Kirkjuráð hefur ákveðið að búskap í Skálholti verði hætt en að ráðinn verði ráðsmaður Skálholts sem sjái um viðhald og önnur viðvik á staðnum. – Gestastofa í Skálholti. Kirkjuráð hefur einnig samþykkt að vígslubiskupshúsi verði breytt í Gestastofu og hefur ákveðið að taka til skoðunar hugmyndir og tillögur að fyrsti áfangi endurnýjunar gamla vígslubiskupshúss, sem ASK arkitektar hafa unnið, í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2020. Eftirtalin gögn eru aðgengileg í gagnaherbergi kirkjuþings:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.