Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 32
32 33
unga fólksins nr. 952/2009 skal kirkjuþingið kjósa einn fulltrúa á kirkjuþing með málfrelsi
og tillögurétt og var María Björt Guðnadóttir kjörin til þess.
Eftirfarandi tólf mál voru afgreidd á Kirkjuþingi unga fólksins.
1. Tillaga um breytingu á starfsreglum um þingsköp kirkjuþings nr. 949/2009 sem kveður
á um að kirkjuþing hið almenna verði pappírslaust fyrir 2020. Jafnframt verði dregið
sem mest úr notkun plasts á öllum sviðum kirkjulegs starfs.
2. Samþykkt var ályktun sem kveður á um að kirkjuþing hið almenna streymi fundum
sínum með hljóði og mynd. Upptökur verði svo aðgengilegar eftir þingið.
3. Samþykkt var tillaga um að prestar þjóðkirkjunnar, sem og biskup Íslands, vígslu-
biskupar og prófastar, ættu ekki að vera opinberir embættismenn íslenska ríkisins.
4. Samþykkt var ályktun um að gerð verði krafa um að þeir prestar sem þjóna sem
sóknarprestar skuli ljúka sérstöku námi á vegum guðfræði- og trúarbragðafræðideildar
Háskóla Íslands. Yrði það á lengd við diplómanám með áherslu á sálgæslu og stjórnun.
Meginröksemdin fyrir þessu er að sóknarprestum mun fækka með sameiningu
prestakalla og verða þeir verkstjórar í prestateymum úti í prestaköllunum.
5. Samþykkt var tillaga um breytingu á starfsreglum kirkjuþings unga fólksins þar sem
kjör tveggja ritara er lagt niður enda verði þingið tekið upp með hljóði og mynd.
6. Tillaga var samþykkt um að söfnuðum verði skylt sjá til þess að fræðsla á vegum
Samtakanna 78 sem kallast „Fræðsla til fagstétta“, fari fram að minnsta kosti á tveggja
ára fresti.
7. Kirkjuþing unga fólksins samþykkti áskorun til biskupsembættisins þess efnis að
opnuð yrði æskulýðsmiðstöð. Langtímamarkmiðið yrði að allir gætu notið slíkrar
miðstöðvar og því þyrfti að huga að landsbyggðinni sem og höfuðborgarsvæðinu hvað
það snerti.
8. Ályktun um að ráðinn yrði æskulýðsprestur hjá biskupsembættinu var samþykkt.
Skal hann meðal annars hafa yfirsýn yfir helgihald fyrir ungt fólk og fræða jafnvel
um kirkjulegar athafnir eins og skírn og hjónavígslur. Æskulýðsprestur myndi vera
talsmaður unga fólksins í kirkjunni og efla æskulýðsstarfsemi á landsvísu í samstarfi
við sóknarpresta og prófasta.
9. Þá lýsti kirkjuþing unga fólksins ánægju sinni með yfirlýsingu sr. Kristjáns Björnssonar,
vígslubiskups í Skálholti, sem birtist á kirkjan.is 14. maí 2019, þar sem meðal annars
kom fram að kirkjan vilji standa með þolendum ofbeldis og taka alvarlega allar ásakanir
um óviðeigandi eða ranga hegðun.
10. Samþykkt var ályktun þar sem skorað er á alla starfsmenn kirkjunnar að draga úr
flugferðum. Fara aðeins í þær ferðir sem teljast nauðsynlegar. Jafnframt skuli kirkjan
kolefnisjafna ferðir sínar með skógrækt á landsvæðum kirkjunnar.
11. Kirkjuþing unga fólksins hvetur sóknarnefndir landsins til þess að kjósa ungt fólk til
setu í sóknarnefndum. Viðmiðið ætti að vera að í hverri sóknarnefnd sitji að minnsta
kosti einn einstaklingur yngri en 30 ára ef möguleiki er fyrir hendi. Þá lýsti þingið
ánægju sinni með þær sóknir sem leitast hafa við að hafa ungt fólk í sóknarnefndum.
12. Kirkjuþing unga fólksins minnti á þingsályktun kirkjuþings 2017, mál nr. 7, þar sem