Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 36
36 37
kirkjunni fyrirsvar, þ.e. biskupi Íslands, kirkjuþingi og kirkjuráði með aðkomu PÍ og annarra
fagfélaga þar sem það á við. Þannig leiði biskup Íslands, sem er leiðtogi þjóðkirkjunnar,
viðræðurnar f.h. kirkjunnar ásamt forseta kirkjuþings og fulltrúa sem kirkjuráð tilnefnir.“
□ Kirkjuráð samþykkti að fela starfshópum kirkjuráðs að taka I. og II. hluta til umfjöllunar
og skila kirkjuráði tillögum sínum og hugmyndum. Forseti kirkjuráðs tilnefndi þrjá
kirkjuráðsmenn í starfshópinn, sr. Axel Árnason Njarðvík, sr. Örnu Grétarsdóttur og
Svönu Helen Björnsdóttur. Kirkjuráð samþykkti tilnefninguna.
□ Kirkjuráð samþykkti að fela lagahópi kirkjuráðs að taka III. hluta ályktunarinnar til
umfjöllunar og skila kirkjuráði tillögum sínum og hugmyndum.
□ Kirkjuráð samþykkti að fela starfshópum kirkjuráðs að taka I. og II. hluta til umfjöllunar
og skila kirkjuráði tillögum sínum og hugmyndum.
Tillögur lagahóps 11. júní 2019:
Lagahópur tekur undir ályktun prestastefnu um nauðsyn stefnumótunar fyrir
þjóðkirkjuna.
Lagahópur telur hins vegar að módelið sem notað var 2004-2010 sé barn síns tíma
og ekki heppilegt til nútíma stefnumótunar. Breytingar í nútímasamfélagi eru einfaldlega
of hraðar til að þessi aðferð henti í dag. Lagahópur bendir á að til þess að stefnumótun
heppnist í framkvæmd sé mjög mikilvægt að sem mestur samhljómur sé innan kirkjulegra
stjórnvalda um málið.
Lagahópur leggur til að kirkjuráð leggi fram þingsályktun á næsta kirkjuþingi um
að ráðist verði í grundvallar stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna og til verksins verði ráðinn
utanaðkomandi ráðgjafi eða ráðgjafar.
4. „Prestastefna 2019 hvetur Biskup Íslands til að stofna gleðinefnd í kirkjunni til að gleðjast
saman og stuðla að aukinni virkni gleðidaganna frá jólum til öskudags og frá páskum til
hvítasunnu.
Nefndin kæmi með tillögur hvernig auka mætti gleðina í kirkjunni á þessum tveimur
tímabilum og stuðla að samvinnu við önnur félög.
Nefndin mundi starfa í 11 mánuði frá 1. júlí 2019 til 31. maí 2020. Hún mundi skila inn
tillögum bæði til Biskups Íslands og presta og djákna annars vegar 15. október fyrir tímabilið
frá jólum til öskudags og hins vegar 1. mars fyrir tímabilið frá páskum til hvítasunnu.“
– Nýtt húsnæði biskupsstofu
Biskupsstofa hefur sagt upp leigusamningi við kirkjumálasjóð og hefur biskup Íslands
gengið til samninga um leigu á skrifstofuhúsnæði í Katrínartúni 4, Reykjavík (Höfðatorgi)
fyrir starfsemi embættisins og jafnframt aðra þá kirkjulegu aðila sem hýstir hafa verið í
Kirkjuhúsinu að Laugavegi 31, Reykjavík, þeir sem það kjósa. Kostir hins nýja húsnæðis
eru helstir þessir: Öll starfsemi biskupsstofu verður sameinuð (þ.m.t. þjónustumiðstöð í
Háteigskirkju) og jafnframt verður hún á einni hæð. Einnig verður Tónskóla þjóðkirkjunnar
boðið að fá aðstöðu í Katrínartúni þ.e.a.s. sú starfsemi sem nú fer fram í Grensáskirkju
svo og Hinu íslenska Biblíufélagi sem er í leiguhúsnæði í safnaðarheimili Dómkirkjunnar.
Húsnæðið er nýlegt og uppfyllir allar nútímakröfur um loftgæði, birtu, hljóðvist, aðgengi
fatlaðs fólks, bifreiðastæði o.s.frv.