Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 38
38 39
Kirkjuþing afgreiddi skýrslu kirkjuráðs með eftirfarandi
þingsályktun:
Kirkjuþing þakkar fyrir að upplýsinga- og kynningarmál voru tekin föstum tökum eins og
kirkjuþing 2018 ályktaði.
Kirkjuþing þakkar skírnarnefnd hennar störf og leggur til að hún haldi áfram vinnu
sinni og kynni söfnuðum tillögur sínar.
Kirkjuþing áréttar að farið verði eftir ályktun kirkjuþings 2017 um hlutdeild unga
fólksins í kirkjustarfi og stjórn og ályktun sama þings um að jöfn hlutföll kynja skuli ávallt
vera í öllum stjórnum, nefndum og ráðum á vegum þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing hvetur til að hið góða og mikilvæga starf Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
verði kynnt betur fyrir söfnuðum landsins.
Kirkjuþing minnir á mikilvægi þess að vandað verði til verka við skipulagsbreytingar
vegna viðbótarsamnings kirkju og ríkis. Fyllsta samráðs og gagnsæis verði gætt í hvívetna.
Nefndarálit allsherjarnefndar um skýrslu kirkjuráðs.
Allsherjarnefnd 2019 hefur fjallað um skýrslu kirkjuráðs og fylgigögn ásamt ávörpum við
upphaf kirkjuþings.
Nefndin þakkar þeim sem ávörpuðu kirkjuþing við þingsetningu í Háteigskirkju.
Drífa Hjartardóttir forseti kirkjuþings talaði um það sem framundan væri hjá
þjóðkirkjunni, um einfaldað lagaumhverfi, meiri aðgreiningu frá ríkisvaldinu, aukið
sjálfstæði og ábyrgð á sínum innri málum með nýjum viðbótarsamningi kirkju og ríkis.
Framundan er þó áframhaldandi samtal við ríkið um leiðréttingu sóknargjalda og fagnaði
hún því stofnun Sóknasambands.
Dómsmálaráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir talaði um að kirkjan yrði að læra
af mistökum sínum en standa samt fast á grunngildunum. Hún minntist einnig á að með
nýjum viðbótarsamningi bæri þjóðkirkjan nú ábyrgð á eigin rekstri og þyrfti að axla
ábyrgð á framkvæmd samningsins.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands minnti á 62. grein Stjórnarskrár lýðveldisins
Íslands en það gerðu einnig forseti og dómsmálaráðherra, þar er kveðið á um að ríkisvaldinu
beri að styðja og vernda þjóðkirkjuna. Biskup sagði að með viðbótarsamningi kirkju og
ríkis væru nýir tímar framundan. Hún minnti á Hjálparstarf kirkjunnar sem á 50 ára afmæli
á næsta ári. Hún kom inn á mikilvægi Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, endurmenntunar
presta í sálgæslu og Tónskóla þjóðkirkjunnar. Þá gerði hún umhverfisstefnu kirkjunnar
einnig að umræðuefni.
Allsherjarnefnd þakkar ýtarlega og góða skýrslu kirkjuráðs.
Nefndin leggur til að málið verði samþykkt með ályktun á þskj. 55.