Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 44
44 45
3. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:
Breiðholts-, Fella- og Hólaprestaköll, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, sameinist í eitt
prestakall, Breiðholtsprestakall.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Í hinu nýja Breiðholtsprestakalli þjóna sóknarprestur og tveir prestar. Embætti sóknarprests
núverandi Breiðholtsprestakalls hefur verið auglýst laust til umsóknar með fyrirvara um
breytingu á því í embætti prests í sameinuðu prestakalli. Tekið verður tillit til vígslualdurs,
menntunar, annarrar reynslu og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði
sóknarprestur sameinaðs prestakalls.
Nefndarálit löggjafarnefndar
Nefndin hefur fjallað um málið.
Fram kemur í málinu að í hinu nýja Breiðholtsprestakalli þjóni sóknarprestur og tveir
prestar. Embætti sóknarprests núverandi Breiðholtsprestakalls hafi verið auglýst laust til
umsóknar með fyrirvara um breytingu á því í embætti prests í sameinuðu prestakalli.
Fram kom í máli framsögumanns að prestaköllin hafa um hríð starfað mikið saman
og eru sóknarnefndirnar og aðrir sem starfa í kirkjunni á einu máli um að sameining
þessara prestakalla verði til mikilla hagsbóta fyrir kirkjustarf prestakallanna. Í hinu nýja
Breiðholtsprestakalli munu þjóna sóknarprestur og tveir prestar.
Í fylgiskjali með málum um sameiningu prestakalla kemur fram að biskupafundur
hefur, frá kirkjuþingi 2018, unnið að áframhaldandi tillögugerð um sameiningu
prestakalla. Hvað varði gildistöku sameiningartillagna almennt verður yfirleitt miðað við
lok skipunartíma presta eða eftir nánara samkomulagi.
Fyrir liggur í málinu fylgiskjal með upplýsingum um kostnað við sameiningartillögurnar
en sameining ofangreindra prestakalla kostar kr. 4.640.970 á ári, þ.e. laun og annar tengdur
kostnaður. Nefndin telur að ekki verði hjá því komist að farið verði í almenna hagræðingu
með það að leiðarljósi að kostnaði þjóðkirkjunnar vegna þessara breytinga verði haldið í
lágmarki.
Löggjafarnefnd leggur til að málið á þingskjali 3 verði samþykkt óbreytt.