Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 48

Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 48
48 49 7. mál 2019 Flutt af biskupi Íslands Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna: Flateyjarsókn, Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi tilheyri Stykkishólmsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi. 2. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Nefndarálit löggjafarnefndar Nefndin hefur fjallað um málið á þingskjali 7 og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Í máli þessu er lagt til Flateyjarsókn í Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi, tilheyri Stykkishólmsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi. Í ódagsettu bréfi frá Gunnari Sveinssyni, fyrir hönd sóknarnefndar Flateyjarsóknar, þar sem fjallað er um tilvonandi sameiningu Reykhólaprestakalls og Hólmavíkurprestakalla segir, að það sé vilji sóknarbarna Flateyjarkirkju og sóknarnefndar í Flateyjarsókn að óska eftir tilflutningi Flateyjarsóknar yfir til Stykkishólmssóknar.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.