Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 48
48 49
7. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:
Flateyjarsókn, Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi tilheyri
Stykkishólmsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Nefndarálit löggjafarnefndar
Nefndin hefur fjallað um málið á þingskjali 7 og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.
Í máli þessu er lagt til Flateyjarsókn í Breiðafjarðar- og Strandaprestakalli,
Vestfjarðaprófastsdæmi, tilheyri Stykkishólmsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi.
Í ódagsettu bréfi frá Gunnari Sveinssyni, fyrir hönd sóknarnefndar Flateyjarsóknar, þar
sem fjallað er um tilvonandi sameiningu Reykhólaprestakalls og Hólmavíkurprestakalla
segir, að það sé vilji sóknarbarna Flateyjarkirkju og sóknarnefndar í Flateyjarsókn að óska
eftir tilflutningi Flateyjarsóknar yfir til Stykkishólmssóknar.