Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 50

Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 50
50 51 9. mál 2019 Flutt af biskupi Íslands Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna: Bolungarvíkur-, Holts-, Ísafjarðar- og Þingeyrarprestaköll, Vestfjarðaprófastsdæmi, sameinist í eitt prestakall, Ísafjarðarprestakall. 2. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Greinargerð. Í hinu nýja Ísafjarðarprestakalli þjóna sóknarprestur og þrír prestar. Tekið verður tillit til vígslualdurs, menntunar, annarrar reynslu og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að afgreiða tillöguna á framhaldskirkjuþingi 2020. Nefndarálit löggjafarnefndar Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið. Lagt er til að Bolungarvíkur-, Holts-, Ísafjarðar- og Þingeyrarprestaköll, Vestfjarða- prófasts dæmi, sameinist í eitt prestakall, Ísafjarðarprestakall. Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september 2019. Prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis veitti umsögn um sameiningu prestakallanna en þar kemur fram að hann telur tillöguna skynsamlega. Aukið samstarf og samvinna presta muni stuðla að bættri þjónustu prestanna og efla kirkjustarf á svæðinu. Þá muni þetta veita möguleika á því að jafna starfsálag. Hann telur presta á svæðinu vera vel í stakk búna til að vinna saman og útfæra þessar tillögur. Í fundargerð biskupafundar frá 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja prestakalli muni þjóna sóknarprestur og þrír prestar. Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020. Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt. Hildur Inga Rúnarsdóttir, Steindór R. Haraldsson og Stefán Magnússon sátu hjá við afgreiðslu málsins.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.