Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 50
50 51
9. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:
Bolungarvíkur-, Holts-, Ísafjarðar- og Þingeyrarprestaköll, Vestfjarðaprófastsdæmi,
sameinist í eitt prestakall, Ísafjarðarprestakall.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Í hinu nýja Ísafjarðarprestakalli þjóna sóknarprestur og þrír prestar. Tekið verður tillit til
vígslualdurs, menntunar, annarrar reynslu og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því
hver verði sóknarprestur sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að afgreiða tillöguna á
framhaldskirkjuþingi 2020.
Nefndarálit löggjafarnefndar
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið.
Lagt er til að Bolungarvíkur-, Holts-, Ísafjarðar- og Þingeyrarprestaköll, Vestfjarða-
prófasts dæmi, sameinist í eitt prestakall, Ísafjarðarprestakall.
Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september
2019.
Prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis veitti umsögn um sameiningu prestakallanna en
þar kemur fram að hann telur tillöguna skynsamlega. Aukið samstarf og samvinna presta
muni stuðla að bættri þjónustu prestanna og efla kirkjustarf á svæðinu. Þá muni þetta
veita möguleika á því að jafna starfsálag. Hann telur presta á svæðinu vera vel í stakk búna
til að vinna saman og útfæra þessar tillögur.
Í fundargerð biskupafundar frá 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja prestakalli
muni þjóna sóknarprestur og þrír prestar.
Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og
annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur
sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020.
Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.
Hildur Inga Rúnarsdóttir, Steindór R. Haraldsson og Stefán Magnússon sátu hjá við
afgreiðslu málsins.