Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 55

Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 55
55 14. mál 2019 Flutt af biskupi Íslands Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna: Selfoss- og Eyrarbakkaprestaköll, Suðurprófastsdæmi, sameinist í eitt prestakall, Árborgar- prestakall. 2. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Greinargerð. Í hinu nýja Árborgarprestakalli þjóna sóknarprestur og tveir prestar. Komi ekki fram athugasemdir við það hyggst biskup Íslands skipa núverandi sóknarprest Selfossprestakalls sem sóknarprest í væntanlegu Árborgarprestakalli og prest Selfossprestakalls sem prest í prestakallinu. Nefndarálit allsherjarnefndar Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið. Tillagan fjallar um að Selfoss- og Eyrarbakka- prestaköll, Suðurprófastsdæmi, sameinist í eitt prestakall, Árborgarprestakall. Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september 2019. Í fundargerð biskupafundar frá fundi 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja prestakalli muni þjóna sóknarprestur og tveir prestar. Biskup Íslands hyggst skipa núverandi sóknarprest Selfossprestakalls sem sóknarprest í væntanlegu Árborgarprestakalli og prest Selfossprestakalls sem prest í prestakallinu, komi ekki fram athugasemdir við það. Löggjafarnefnd telur rétt að núverandi sóknarprestur Eyrarbakkaprestakalls verði þriðji prestur prestakallsins. Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020. Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt. Stefán Magnússon sat hjá við afgreiðslu málsins.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.