Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 55
55
14. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:
Selfoss- og Eyrarbakkaprestaköll, Suðurprófastsdæmi, sameinist í eitt prestakall, Árborgar-
prestakall.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Í hinu nýja Árborgarprestakalli þjóna sóknarprestur og tveir prestar. Komi ekki fram
athugasemdir við það hyggst biskup Íslands skipa núverandi sóknarprest Selfossprestakalls
sem sóknarprest í væntanlegu Árborgarprestakalli og prest Selfossprestakalls sem prest í
prestakallinu.
Nefndarálit allsherjarnefndar
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið. Tillagan fjallar um að Selfoss- og Eyrarbakka-
prestaköll, Suðurprófastsdæmi, sameinist í eitt prestakall, Árborgarprestakall.
Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september
2019.
Í fundargerð biskupafundar frá fundi 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja
prestakalli muni þjóna sóknarprestur og tveir prestar. Biskup Íslands hyggst skipa núverandi
sóknarprest Selfossprestakalls sem sóknarprest í væntanlegu Árborgarprestakalli og prest
Selfossprestakalls sem prest í prestakallinu, komi ekki fram athugasemdir við það.
Löggjafarnefnd telur rétt að núverandi sóknarprestur Eyrarbakkaprestakalls verði
þriðji prestur prestakallsins.
Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og
annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur
sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020.
Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.
Stefán Magnússon sat hjá við afgreiðslu málsins.