Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 61
61
III. KAFLI
Markmið
Markmið jafnréttisstefnunnar er að stuðla að jafnri stöðu og jöfnum rétti allra kynja í
þjóðkirkjunni og jöfnum möguleikum allra kynja til starfa, áhrifa og þjónustu.
Markmiðin eru:
1. Að skapa forsendur fyrir fólk í kirkjunni til að njóta þess jafnréttis sem tryggt er í
lögum.
2. Að festa kynjasamþættingu og jafnréttismál í sessi á öllum sviðum kirkjulegs starfs
og innan stjórnsýslu kirkjunnar.
3. Að festa kynjaða fjárlagagerð í sessi á öllum sviðum kirkjulegs starfs og innan
stjórnsýslu kirkjunnar.
4. Að bæta stöðu eða auka möguleika kynjana ef á kyn hallar á ákveðnu sviði.
5. Að stuðla að jafnri stöðu kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum.
6. Að stuðla að betra samræmi milli fjölskyldu- og atvinnulífs starfsmanna.
Markmiðin og framkvæmd þeirra:
Neðangreind áætlun er fyrir árin 2019-2023
1. Að skapa forsendur fyrir fólk í kirkjunni til að njóta þess jafnréttis sem tryggt
er í lögum.
a. Að hvetja til þess að æðsta stofnun kirkjunnar, kirkjuþing, samþykki ekkert
sem brjóti í bága við jafnréttislög og leita þurfi álits jafnréttisnefndar í öllum
vafatilvikum.
Hvatt verður til þess að æðsta stofnun kirkjunnar, kirkjuþing, tryggi að allt
sem þar er samþykkt samræmist gildandi jafnréttislögum, ekkert sé samþykkt
þar sem brjóti í bága við þau eða takmarki réttindi fólks til að njóta þeirra
réttinda sem lögin eiga að tryggja. Verði borin kennsl á aðstæður eða þær
skapist, sem torveldi starfsfólki að leita réttar síns samkvæmt jafnréttislögum
skal umsvifalaust setja upp áætlun til að bæta úr.
Ábyrgð: Biskup Íslands og jafnréttisnefnd.
Tímamörk: Árið 2019-2020.
b. Að kirkjuráð og forsætisnefndin flytji tillögu fyrir kirkjuþing 2020 um að
þingmenn hugi ávallt að jafnréttissjónarmiðum þegar teknar eru ákvarðanir
eða reglur settar, sem varða vígða- eða óvígða þjóna kirkjunnar. Jafnframt að
aflað skuli álits jafnréttisnefndar eða jafnréttisfulltrúa í öllum vafatilvikum.
Ábyrgð: Kirkjuráð og forsætisnefnd.
Tímamörk: Árið 2020.
c. Að biskup Íslands og kirkjuráð skilgreini nákvæmlega hvaða úrræði og ferlar séu
fyrir hendi fyrir fólk til að leita réttar síns telji það vera brotið á sér samkvæmt
jafnréttislögum.
Ábyrgð: Biskup Íslands, kirkjuráð, kirkjuþing og jafnréttisfulltrúar.
Tímamörk: Árið 2019-2020.