Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 76

Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 76
76 77 27. mál 2019 Flutt af Hreini S. Hákonarsyni Tillaga til þingsályktunar um frekari stefnumótun þjóðkirkjunnar Málið var sameinað 29. máli Nefndarálit og breytingartillaga frá allsherjarnefnd, fjárhagsnefnd og löggjafarnefnd. Allsherjarnefnd, fjárhagsnefnd og löggjafarnefnd, hafa fjallað um 27. og 29. mál og leggja til að þau verði sameinuð í eitt mál og afgreidd þannig. Tillögurnar: 27. mál. Tillaga til þingsályktunar um frekari stefnumótun þjóðkirkjunnar. 29. mál. Tillaga til þingsályktunar um gerð sviðsmynda fyrir þjóðkirkjuna. Tillögurnar miða báðar að því að unnin verði stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna og eru því efnislega um náskyldar. Í tillögunni í 27. máli er lögð áhersla á að hugað verði sérstaklega að stefnumótun og framtíðarsýn þjóðkirkjunnar í ljósi hins nýja viðbótarsamnings íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar og þeirra breytinga sem hann felur í sér á sambandi samningsaðilja. Séð verði til þess að sem flest verði kölluð að stefnumótunarborðinu í samvinnu við prófasta, presta, djákna og sóknarnefndir. Í 29. máli er m.a. lögð áhersla á að stefnumótum verði að ná til grasrótar þjóðkirkjunnar. Að öðrum kosti verði ekki sátt um hana. Lagt er til að heiti hins sameinaða máls verði: Tillaga til þingsályktunar um undirbúning að stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna. Nefndirnar taka undir með flutningsmönnum um að nauðsynlegt sé að hafinn sé undirbúingur að stefnumótun þjóðkirkjunnar, einkum með tilliti til þeirra breytinga sem kirkjan hefur gengið í gegnum á síðast liðnum mánuðum og árum og þá ekki síst vegna viðbótarsamningsins sem breytti bæði fjárhagslegri stöðu kirkjunnar og réttarstöðu presta og annarra starfsmanna biskups Íslands. Við þessar sameinuðu tillögur leggja nefndirnar fram breytingartillögu sem hljóðar svo: B r e y t i n g a r t i l l a g a. Kirkjuþing 2019 samþykkir að fela kirkjuráði að hefja vinnu að undirbúningi að stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna og ráða utanaðkomandi ráðgjafa/ráðgjafafyrirtæki til að meta núverandi stöðu þóðkirkjunnar varðandi skipulag, rekstur og stjórnsýslu. Taka skal tilliti til þeirra breytinga sem kirkjan hefur gengið í gegnum á síðast liðnum mánuðum og árum. Ásamt mati á núverandi stöðu skili ráðgjafinn/ráðgjafafyrirtækið af sér tillögum um með hvaða hætti þjóðkirkjan á að nálgast framtíðarsýn og heildar stefnumótun. Hafa

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.