Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 95
95
40. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Þingsályktun um tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2019 samþykkir meðfylgjandi tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar:
Tónlistarstefna þjóðkirkjunnar.
Um grundvöll kirkjutónlistarinnar.
Tónlistin er gjöf Guðs.
Grundvöllur kirkjutónlistar er trúin á þríeinan Guð, föður, son og heilagan anda. Hún er
samofin sköpuninni og inntaki fagnaðarerindisins og er farvegur heilags anda.
Kristin kirkja um allan heim býr að ríkulegum tónlistararfi. Grunnur þess arfs er söngur
Davíðssálma og annarra ljóða Biblíunnar. Þjóðkirkjan byggir á þessari arfleifð aldanna og
mótar hana og þróar.
Um kirkjusönginn.
Þjóðkirkjan er syngjandi kirkja. Guðsþjónustan er Guði til dýrðar og söfnuðinum til
blessunar og uppbyggingar í trú, von og kærleika. Söngur og tónlist tengir fólk á einstakan
hátt. Helgihaldið byggir á almennri, litúrgískri þátttöku og almennur söngur hefur
grundvallarvægi þ.m.t. við skírn, fermingu, hjónavígslu og útför.
Meginreglan er að í kirkjunni fari fram lifandi tónlistarflutningur, hljóðritanir komi
ekki í staðinn og textar séu almennt á íslensku.
Um hljóðfærin í kirkjunni.
Hið hefðbundna hljóðfæri kirkjunnar er orgelið. Hlutverk þess er að styðja við safnaðarsöng
og prýða helgihald og tónleika. Önnur hljóðfæri sem notuð eru í kirkjunni þjóna einnig
þeim tilgangi.
Um sálmabókina og tónlist utan sálmabókar.
Sálmabókin er söngbók kirkjunnar. Hún geymir kjarna kirkjusöngsins og er í stöðugri
þróun. Söfnuðir þjóðkirkjunnar syngja einnig trúarlega texta og lög utan sálmabókar
þegar það hentar.
Tónlist utan sálmabókar með veraldlegum texta getur verið viðbót sem þjónar tilgangi
athafnarinnar, en leysir aldrei sálminn af hólmi við kirkjulegar athafnir.
Framkvæmd kirkjutónlistarstefnunnar er skilgreind í starfsreglum um kirkjutónlist á
vegnum þjóðkirkjunar nr. 1074/2017.
Tónlistarstefna þjóðkirkjunnar var endurskoðuð og þannig samþykkt á kirkjuþing 2019.
Nefndarálit allsherjarnefndar
Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.