Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 4
frá 28. febrúar hafa tæplega 5000 manns smitast af covid-19 hér á landi og 17 látist
þegar þetta er ritað í byrjun nóvember. ríflega 270 hafa lagst á sjúkrahús og 43 inn-
lagnir á gjörgæslu. Álagið er mikið á heilbrigðisstarfsfólk, og var þegar mikið fyrir
faraldurinn. Vegna starfs síns hefur öldi hjúkrunarfræðinga farið í sóttkví og verið
í einangrun frá ölskyldu og vinum vegna smithættu. fyrir skömmu staðfesti
alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga að 1.500 hjúkrunarfræðingar frá 44 löndum hefðu
látist af völdum covid-19. Áætlað er að dauðsföll heilbrigðisstarfsmanna af völdum
covid-19 á heimsvísu gætu orðið fleiri en 20.000.
hjúkrunarfræðingarnir Sesselja haukdal friðþjófsdóttir og Ásgeir Valur Snorra-
son voru meðal þeirra fyrstu sem greindust með covid-19 hérlendis. Ásgeir Valur
varð ekki mikið veikur en Sesselja var ekki svo heppin. Þegar hún hafði lokið margra
vikna einangrun var tilhlökkunin mikil að komast út meðal fólks og hreyfa sig.
„Þegar stóri dagurinn kom þorði ég hreinlega ég ekki ein út, ég fékk smá áfall og ein-
faldlega grét. Það var mikið áfall. Ég man að ég horfði mikið á fréttir og hafði miklar
áhyggjur hversu veik ég gæti orðið — gæti ég dáið?“ Sesselja er enn að glíma við
fylgikvilla covid-19. að fást við óþekkta veiru er mikill rússíbani og hefur tekið mikið
á Sesselju, en hún deilir reynslu sinni af því að smitast af covid-19 með lesendum
blaðsins. Það sem styrkir hana á vegferðinni er að muna góðu dagana — hvernig
lífið var fyrir covid-19.
„Það geta allir fengið þessa veiru. Það eru allir undir hnífnum,“ segir Sólrún Ólína
Sigurðardóttir, formaður fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. Þrátt fyrir að
fólk sé orðið reynslunni ríkara í þriðju bylgju faraldursins eru margir orðnir þreyttir.
„Við fundum fyrir töluverðum heilsukvíða og streitu vegna hinnar óþekktu veiru og
o þuri fólk bara að ræða við einhvern um líðan sína og einkenni. Sá kvíði er enn
til staðar og þó að störf hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu snúist alla jafnan um stuðn -
ing við andlega líðan þá hefur vissulega reynt enn meira á okkur í þessum faraldri.“
Í þessu tölublaði er öldi viðtala við hjúkrunarfræðinga víðs vegar um heilsu-
gæsluna en þeir hafa staðið í ströngu frá upphafi faraldursins, allt frá því að sjá um
sýnatöku, sinna upplýsingagjöf, róa fólk og hughreysta. Það hefur verið stórt hlutverk
hjúkrunarfræðinga að sinna upplýsingagjöf bæði í gegnum síma og netspjall og hefur
netspjallið á heilsuvera.is slegið öll met í ölda heimsókna í kjölfar covid-19. rætt
er við Margréti héðinsdóttur sem hefur byggt upp netspjallið og stýrt vefnum undan -
farin tvö ár.
Það eru ekki allir eins lánsamir að hafa aðgang að öflugu heilbrigðiskerfi eins og
Eyrún gísladóttir upplifði þegar hún fór í sjáloðaliðastarf til indlands sem ný -
útskrifaður hjúkrunarfræðingur. Eyrún gefur lesendum innsýn í arlægan veruleika
í máli og myndum.
forsíðumyndina tók helga Sif friðjónsdóttir af listaverki eir Vilmund Þorgríms-
son myndhöggvara að hvarfi í Djúpavogi.
4 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Helga Ólafs ritstjóri.
Ritstjóraspjall
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Suðurlandsbraut 22, 108 reykjavík
Sími 540 6405
netfang helga@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður helga Ólafs Fagritstjóri hafdís Skúladóttir Ritnefnd aðalbjörg Stefanía helga-
dóttir, alda Ásgeirsdóttir, anna Ólafía Sigurðardóttir, hafdís Skúladóttir, hrund Scheving Thorsteinsson,
Margrét hrönn Svavarsdóttir, Sigurlaug anna Þorsteinsdóttir Blaðamaður Magnús hlynur hreiðarsson
Forsíðu mynd helga Sif friðjónsdóttir Ljósmyndir Ýmsir Yfirlestur og próförk ragnar hauksson Aug -
lýsingar Erna Sigmundsdóttir sími 821 2755 Hönnun og umbrot Egill Baldurs son ehf. Prentun Prenttækni
ehf.
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu ritstjori@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræði-
greina er að finna á vefsíðu tímaritsins.
iSSn 2298-7053