Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 94

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 94
að komast í og úr rúmi og fara í bað og á salerni. Auglýst var eftir þátttakendum á heimasíðu og fésbókarsíðu (e. Facebook) adstandandi.is. Alls buðu 15 aðstandendur sig fram, þar af tveir sem ekki uppfylltu þátttökuskilyrði rannsóknarinnar. Rannsóknin er hluti af þróun heimasíðunnar www.adstand- andi.is sem fyrsti höfundur, Fjóla Sigríður Bjarnadóttir (FSB), hefur unnið að. Rannsóknin var jafnframt hluti af MS-námi FSB við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Gerð var grein fyrir þessu í kynningarbréfi til þátttakenda. Meðhöf- undar og leiðbeinendur FSB eru hjúkrunarfræðingar með reynslu af eigindlegum rannsóknum innan öldrunar og sjúk- lingafræðslu. Rannsakendur höfðu engin tengsl við þátttak- endur. Þátttakendur voru 12 konur á aldrinum 40 til 63 ára og var meðalaldurinn 52 ár. Enginn karl bauð sig fram til þátttöku. Meðalaldur foreldra var 80 ár. Flestir þeirra bjuggu á eigin heimili þegar viðtölin fóru fram eða alls níu, tveir bjuggu í þjónustuíbúð og eitt foreldrið bjó hjá dóttur sinni. Allir þátt- takendur fengu stuðning frá fjölskyldu sinni við umönnunina. Í töflu 1 má sjá lýsingu á bakgrunni þátttakenda. Tafla 1. Lýsing á þátttakendum Breytur Fjöldi Aldur þátttakenda < 50 ára 5 ≥ 50 ára 7 Hjúskaparstaða Gift/í sambúð 10 Einhleyp/ekkja 2 Staða á vinnumarkaði Útivinnandi 9 Heimavinnandi 1 Öryrki 2 Aldur foreldra < 80 5 ≥ 80 7 Kyn foreldra Karl 2 Kona 10 Tegund skerðingar hjá foreldri Líkamleg skerðing 4 Vitræn skerðing 5 Líkamleg og vitræn skerðing 3 Framkvæmd Til að auka réttmæti og áreiðanleika rannsóknarinnar var stuðst við lýsingu Malterud (2001) um kerfisbundna öflun gagna og greiningu á þeim. Gögnum var safnað með einstak- lingsviðtölum á tímabilinu desember 2018 til maí 2019. Fyrsti höfundur tók öll viðtölin og fóru þau fram þar sem þátttak- endur óskuðu eftir: á heimilum þátttakenda, opinberum stöð - um þar sem óviðkomandi trufluðu ekki eða skrifstofu rann- sakanda (FSB). FSB hitti 11 þátttakendur og tók síma viðtal við einn. Í viðtölunum var stuðst við hálfstaðlaðan viðtalsramma en slíkt stuðlar að því að þær upplýsingar sem þarf til að svara rannsóknarspurningunni séu dregnar fram (Grove o.fl., 2013). Viðtalsramminn var fyrst saminn út frá fræðilegu efni og síðan ígrundaður og endurskoðaður í rýnihópi rannsakenda. Tafla 2 sýnir aðalspurningar úr viðtalsrammanum. Tafla 2. Aðalspurningar úr viðtalsramma Hvaða áhrif hefur skert færni móður þinnar/föður þíns haft á þig? Hvaða stuðning hefur þú/þið fengið? Hvar hefur þú fengið upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru fyrir þig/ykkur? Á hverju strandaði þekking þín varðandi aðstoð þegar færni - skerðing móður þinnar/föður þíns fór versnandi? Hvað telur þú að geti aukið þekkingu fólks í þínum sporum? Getur þú lýst því hvernig þú sérð fyrir þér að best sé að þjóna aðstandendum aldraðra varðandi upplýsingar? Hvaða úrræði telur þú að gætu nýst þér/ykkur? Hvaða upplýsingar finnst þér þurfa að vera aðgengilegar? Í viðtölunum var lögð áhersla á að þátttakendur staðfestu frá- sagnir sínar. Í lok hvers viðtals fór FSB yfir aðalatriði viðtalsins með hverjum þátttakanda til að fullvissa sig um réttan skilning á frásögninni og skráði niður athugasemdir sínar. Upplýsingar um þátttakendur, kyn, aldur og tengsl við hinn aldraða voru skráðar í lok viðtals. Til að ákvarða fjölda þátttakenda var stuðst við líkan Malterud og félaga (2016) um styrk upplýsinga (e. information power). Þar er mælt með því að ákvarða fjölda þátttakenda, meðal annars út frá því hversu sértæk rannsókn- arspurningin er, og þekkingu þátttakenda á efninu. Eftir tólf viðtöl töldu rannsakendur að gögnin væru nægileg til þess að uppfylla markmið rannsóknarinnar. Lengd viðtala var að meðaltali 45 mínútur (21–103 mín- útur). Öll viðtölin voru hljóðrituð og skrifuð upp orðrétt. Gagnagreining Gögnin voru greind í gagnagreiningarforritinu Nvivo, útgáfu 11.4.3. og notuð var kerfisbundin textaþétting (e. systematic text condensation) (Malterud, 2012) til að greina gögnin. Að - ferðin byggist á sálfræðilegri fyrirbærafræðigreiningu Giorgis og felst í því að greina skráð viðtöl í fjórum stigum en á þessum stigum eru fundin mynstur og þemu (Malterud, 2012). Á fyrsta stiginu, heildarsýn — frá óreiðu að þemum (e. total impression–from chaos to themes), var lögð áhersla á að kynnast gögnunum og fá heildarmynd. Á þessu stigi var leitað eftir grófum hugmyndum að fyrstu þemum, svokölluðum for þem - um (e. preliminary themes) sem lýsa helstu atriðum við talsins, fjóla sigríður bjarnadóttir, kristín þórarinsdóttir og margrét hrönn svavarsdóttir 94 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.