Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 30
Símalistinn sprakk
„Ég man þegar við vorum upplýst um það snemma árs 2020 að í kína væri komin
upp veirusýking sem dreifðist hratt um heiminn. Það leið ekki langur tími þangað
til veiran var komin til Íslands. Þá byrjaði ballið og starfsemi heilsugæslunnar gjör-
breyttist á örskömmum tíma. Stöðinni var snemma skipt upp vegna samkomutak-
markana og þannig var helmingur starfsfólks á stöðinni í klínískri vinnu en hinn
helmingurinn utan stöðvar í fjarvinnu. Þannig unnum við í tæplega þrjá mánuði. Í
upphafi faraldursins gegndu hjúkrunarfræðingar innan heilsugæslunnar gríðarlega
mikilvægu hlutverki við sýnatökur, símaráðgjöf og skráningu í sóttkví. Símalistinn
sprakk og við vorum oft langt fram eftir að klára seinustu símtöl dagsins. Einnig
fjölgaði fyrirspurnum í gegnum heilsuveru á netinu til muna. allar stöðvar voru
daglega að taka sýni. fyrst um sinn fóru sýnatökurnar fram úti. Bílaraðirnar voru
langar og það var oft kalt,“ segir Margrét.
Bílastæðakjallari Hörpu
Margrét segir að til að anna eftirspurn um helgar hafi heilsugæslustöðvarnar skipst
á að standa vaktina í bílstæðakjallaranum í hörpu. „já, um tíma var skortur á búnaði
eins og sýnapinnum og þá þurfti að vanda vel hverja ætti að bóka í sýnatöku og hverja
ekki. Eftir því sem fleiri sýktust fór covid-19 að leggja undir sig meira af okkar dag-
legu starfsemi og við þurftum að forgangsraða verkefnum enn frekar. aðeins bráð
erindi komu inn á stöð og því sem hægt var að sinna símleiðis var sinnt með þeim
hætti. Til þess að minnka líkur á smiti var komið upp sýkingamóttöku á ákveðnum
tíma dags. Verkefnum var forgangsraðað í ungbarnavernd, mæðravernd og heilsu-
vernd skólabarna. Til lengdar er þó ekki hægt að skerða þessa þjónustu.“
Verkefni heilsugæslunnar hafa breyst
Eins og gefur að skilja hafa verkefni heilsugæslunnar breyst og þróast mikið frá því
í upphafi ársins. „já, það má með sanni segja, seinustu vikur hafa inflúensubólusetn-
ingar verið stór partur af starfseminni. Símaráðgjöfin er áfram mikil og nú hefur
bæst við í skjólstæðingahópinn fólk með eftirköst af covid-19. Þegar bóluefni kemur
á markað verður það svo hlutverk heilsugæslunnar að sjá um þá bólusetningu. Það
eru því næg verkefni fram undan. Á heilsugæslunni í garðabæ höfum við líka lent í
smiti innan starfsmannahópsins og það leiddi til þess að stór hluti starfsmanna var
um tíma í sóttkví. Það reyndi mikið á en var að sama skapi lærdómsríkt,“ segir Margrét.
30 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Núna erum við í miðri orrustu og hugsum
bara um einn dag í einu
segir Margrét Björnsdóttir
Margrét Björnsdóttir hóf hjúkrunarferilinn sem hjúkrunarnemi á bráðamóttöku barna á
Landspítalanum og hélt þar áfram eftir útskrift. Síðar fór hún að vinna á hjartadeildinni og við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Eftir það lá leið hennar til Heilsugæslu höfuðborgar -
svæðisins og þar starfar hún nú sem fagstjóri hjúkrunar á heilsugæslunni í Garðabæ. Margrét
er líka heilsuhagfræðingur. Hún svaraði nokkrum spurningum blaðsins sem snúa fyrst og
fremst að covid-19-faraldrinum og hlutverki heilsugæsluhjúkrunarfræðinga á þeim vettvangi.
Margrét Björnsdóttir, heilsu-
hagfræðingur og fagstjóri hjúkrunar
á heilsugæslunni í Garðabæ.