Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 88
Cohens (1988 ) til að meta hvort um veik (0,10–0,29), mið -
lungssterk (0,30–0,49) eða sterk tengsl (0,50–1,0) væri að ræða.
Niðurstöður
Af þeim 49 hjúkrunarfræðingum sem svöruðu spurningalist-
anum höfðu 22 (45%) verið í starfi í 15 ár eða lengur, 19 (39%)
í 4 til 14 ár og 8 (16%) í minna en 4 ár. Rétt um helmingur
hjúkrunarfræðinganna var ekki í stjórnunarstöðu eða 25.
Starfsánægja og þjónandi forysta
Almennt séð voru hjúkrunarfræðingar á HSN ánægðir í starfi.
Rúm 89% hjúkrunarfræðinganna (N=42) svöruðu því til að
þeir væru mjög ánægðir eða ánægðir í núverandi starfi og rúm
10% (N = 5) að þeir væru hvorki ánægðir né óánægðir. Enginn
taldi sig frekar eða mjög óánægðan í starfi. Ekki kom fram
munur á starfsánægju hjúkrunarfræðinganna eftir starfsaldri
(χ2(4,47) = 3,63; p < 0,05) eða hvort viðkomandi var í stjórn-
unarstöðu eða ekki (χ2(2,46) = 3,19; p<0,05).
Tafla 1 sýnir vægi þjónandi forystu í fari næstu yfirmanna
í hjúkrun og undirþátta ásamt innri áreiðanleika SLS-spurn-
ingalistans og undirþátta. Niðurstöðurnar sýndu að áreiðan-
leiki spurningalistans í heild var mjög góður eða 0,906 sam -
kvæmt Cronbachs-alfa-áreiðanleikastuðlinum. Innri áreiðan-
leiki hvers undirþáttar lá á bilinu 0,631–0,923. Þrír af átta
þáttum mældust undir viðmiðunarmörkum (α < 0,7). Þetta
voru þættirnir hugrekki, forgangsröðun í þágu annarra og fals-
leysi sem þýðir að þessir þættir eru ekki áreiðanlegir hjá þeim
hópi sem þessi rannsókn náði til. Heildarvægi þjónandi for-
ystu var 4,62 af 6,0 mögulegum og staðalfrávikið 0,65. Meðal-
talsstigafjöldi undirþátta þjónandi forystu lá á bilinu 3,39 til
5,01. Meðaltalið var hæst fyrir undirþáttinn fyrirgefningu
(M = 5,01, SF = 0,74) en það gefur til kynna að persónulegur
ágreiningur trufli ekki samskipti hjúkrunarfræðinga og yfir-
manna í hjúkrun á HSN.
Niðurstöðurnar sýna marktæka sterka jákvæða fylgni milli
starfsánægju og þjónandi forystu (r = 0,574, p < 0,05) og það
þýðir að eftir því sem ánægjan var meiri voru heildarstig þjón-
andi forystu fleiri. Einnig sýna niðurstöðurnar jákvæða fylgni
milli starfsánægju og sjö af átta undirþáttum þjónandi forystu.
Sterkustu tengslin voru við undirþáttinn eflingu (r = 0,645, p
< 0,05) og ráðsmennsku (r = 0,424, p < 0,05). Aðrir undir -
þættir voru með miðlungssterk tengsl, sjá nánar í töflu 2.
Umræður og ályktanir
Í þessari rannsókn var skoðuð starfsánægja hjúkrunarfræðinga
á HSN og mat þeirra á vægi þjónandi forystu í fari yfirmanna
sinna í hjúkrun í kjölfarið á viðamiklum breytingum í heil-
brigðiskerfinu sem leiddu meðal annars til þess að Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands varð til. Niðurstöðurnar sýndu að hjúkr -
unarfræðingarnir voru almennt ánægðir í starfi þrátt fyrir
skipulagsbreytingar en enginn af þeim 49 hjúkrunarfræð-
ingum sem tóku þátt í rannsókninni svaraði því til að þegar á
heildina væri litið væri hann óánægður í starfi. Þessar niður -
stöður koma heim og saman við niðurstöður Hallfríðar Ey-
steinsdóttur o.fl. (2013) um að mikill meirihluti starfsfólks á
hjúkrunardeildum á landsbyggðinni mældist ánægður í starfi
um hálfu ári eftir að talsverð endurskipulagning varð á störf -
um þeirra vegna hagræðingarkrafna. Þetta er nokkuð athygli-
vert þar sem rannsóknir hafa sýnt að mikil endurskipulagning
leiði til minni starfsánægju (Burke o.fl., 2011; Hjördís Sigur-
steinsdóttir, 2016).
kristín þórarinsdóttir, hjördís sigursteinsdóttir og kristín thorberg
88 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Tafla 1. Vægi þjónandi forystu og undirþátta
Fjöldi Meðaltal Miðgildi SF Cronbachs-alfa
Heildarmæling á þjónandi forystu 49 4,62 4,73 0,65 0,906
Efling 49 4,86 5,00 0,80 0,923
Forgangsröðun í þágu annarra 49 4,68 4,67 0,93 0,650
Ábyrgð 48 4,41 4,50 0,92 0,834
Fyrirgefning 49 5,01 5,00 0,74 0,841
Hugrekki 48 3,39 3,50 1,21 0,631
Falsleysi 47 4,31 4,25 0,77 0,660
Auðmýkt 46 4,54 4,67 0,79 0,903
Ráðsmennska 48 4,92 5,00 0,94 0,838
Tafla 2. Tengsl starfsánægju og þjónandi forystu og undir -
þátta
Fylgnistuðull Fjöldi
(Spearman-rhó)
Heildarmæling á þjónandi forystu 0,574** 47
Efling 0,645** 47
Forgangsröðun í þágu annarra 0,361** 47
Ábyrgð 0,307* 46
Fyrirgefning 0,377** 47
Hugrekki 0,031 46
Falsleysi 0,369** 45
Auðmýkt 0,359** 44
Ráðsmennska 0,424** 46
* marktækt p<0,05
** marktækt p<0,01