Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 60
Dr. Þórdís katrín Þorsteinsdóttir sá um skipulagningu námskeiðsins, en hún er fædd
og uppalin í reykjavík og hefur búið þar alla tíð utan 9 ára sem hún bjó í Svíþjóð.
„Ég gekk í Álftamýrarskóla og Menntaskólann við hamrahlíð. Móðir mín heitir ingi-
björg Björnsdóttir, fyrrverandi verkefnisstjóri í norræna húsinu, og stjúpfaðir minn
var Ólafur h. Óskarsson skólastjóri, faðir minn er Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor
emeritus í eðlisfræði og vísindasögu, og stjúpmóðir Sigrún júlíusdóttir, prófessor
emeritus í félagsráðgjöf. Ég á alls 4 bræður. Eiginmaður minn er Ásgeir Thoroddsen,
krabbameinsskurðlæknir kvenna, og við eigum börnin Tómas jökul laganema, ingi-
björgu menntaskólanema, Svanbjörn Orra grunn skólanema og labradorhundinn
Dítu.“
Lærði að standa með sjálfri sér í hjúkrunarfræði
Sjúkrahúsumhverfið, þá sérstaklega langir gangar og hvítir sloppar, vöktu athygli
Þórdísar katrínar á unga aldri. henni datt þó ekki hjúkrunarfræðinám í hug fyrr en
ein af elstu og bestu vinkonum hennar, sem var þá byrjuð í náminu, hvatti hana til
þess. „frá fyrsta misseri í hÍ hef ég verið sannfærð um að þetta væri fyrir mig. námið
var mjög fjölbreytt en þar lærði ég ekki síst að losna við feimnina, standa með sjálfri
mér og tala um viðkvæm málefni. Ég kann vel við þessa heildrænu hugsun sem
hjúkrun byggist á, að horfa á einstaklinginn í heild og í sínu umhverfi en ekki á ein-
staka vandamál eða sjúkdóm sem hrjáir hann. hjúkrunarfræðin gaf mér í raun al-
gerlega nýja sýn í lífinu.“ Þórdís katrín starfaði meðal annars á áfengisdeild,
öldrunardeild og á sjúkrahúsinu á húsavík samhliða námi. Eftir útskrift starfaði hún
lengst af á almennri handlækningadeild á Landspítalanum við hringbraut en einnig
á bráðamóttökunni og hjartadeild. Í Svíþjóð starfaði hún á handlækningadeild
sjúkrahússins í Borås og síðar sem rannsóknar hjúkrunarfræðingur á krabba-
meinsmiðstöðinni í gautaborg. hún lauk meistaranámi frá háskóla Íslands og dipl -
60 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Hjúkrunarfræðin gaf nýja sýn á lífið
Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur er með marga hatta á höfðinu því hún
er forstöðumaður fræðasviðs í bráðahjúkrun við Hjúkrunarfræðideild HÍ, formaður kennslu-
nefndar Heilbrigðisvísindasviðs HÍ og vinnur líka á rannsókna stofu LSH og HÍ í bráðafræðum.
70 hjúkrunarfræðingar víðs vegar að af landinu hófu nám í bráða hjúkrun við Hjúkrunar -
fræðideild Háskóla Íslands haustið 2019. Í ágúst sama ár sóttu nemendurnir þriggja daga nám-
skeið sem haldið var í húsnæði Íþróttakennaraháskólans á Laugarvatni.
„Frá fyrsta misseri í HÍ hef ég verið sannfærð um að þetta væri fyrir
mig. Námið var mjög fjölbreytt en þar lærði ég ekki síst að losna
við feimnina, standa með sjálfri mér og tala um viðkvæm málefni.
Ég kann vel við þessa heildrænu hugsun sem hjúkrun byggist á, að
horfa á einstaklinginn í heild og í sínu umhverfi en ekki á einstaka
vandamál eða sjúkdóm sem hrjáir hann.“
Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarfræðingur með marga
hatta í vinnunni sinni. Hér er hún
stödd á Laugarvatni á námskeiðinu
sem hún hafði yfirumsjón með í ágúst
síðastliðnum. Ljósmynd/Magnús
Hlynur Hreiðarsson.