Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 62
Mikill áhugi á bráðahjúkrun
Þórdís katrín undirbjó þriggja daga námskeið nýlega á Laugarvatni fyrir þá sem eru
að læra bráðahjúkrun. Ástæðan var tvíþætt, annars vegar frétti hún að húsnæði
Íþróttakennaraháskólans á Laugarvatni væri laust og hins vegar komu nemendur
víða að af landinu: „Því stakk ég upp á því að hafa þessa kennsludaga á Laugarvatni
og þannig þyrftu allir að fara að heiman. nemendur tóku mjög vel í þetta, en það
stóð tæpt að þetta tækist því við ætluðum að hafa kennsluna í mars en urðum að
fresta vegna covid. Við þorðum svo ekki að staðfesta staðsetninguna og framkvæmd-
ina í haust fyrr en ljóst var að samkomutakmarkanir leyfðu, þ.e. að þessi fjöldi mátti
koma saman í kennslu með 1 metra reglu. að vera á Laugarvatni, í því fallega um-
hverfi, skipti verulegu máli, þó svo alls ekki allir hafi gist á heimavistinni sem þarna
er. Þarna vorum við í friði og tókum samþjappaða kennsludaga í að fjalla um málefni
sem öllum voru hugleikin. Það skapaðist afskaplega góð stemning, hjúkrunarfræð-
ingar frá mismunandi sjúkrastofnunum kynntust og vonandi mun það leiða til alls
konar samvinnu og framfara.“
Mikill áhugi er á sérnámi í bráðahjúkrun og það á sér skýr ingar. „undanfarin ár hefur
verið mikið álag á hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni vegna bráðra tilvika
ferðamanna sem hafa verið á stöðum þar sem ekki er endilega formlegur við búnaður
eða sjúkrastofnun til að sinna þeim fjölda fólks sem raunverulega hefur verið á
svæðinu, t.d. stór umferðarslys á Suðurlandi og önnur slík tilvik. auk þess felur
bráðahjúkrun sífellt í sér ný og ný viðfangsefni, til dæmis tengd öldrun þjóðar innar,
síbreytilegri samfélagsgerð, nýjum vímuefnum, frístundaiðkun og svo má lengi telja.
Það er mjög gleðilegt að svona margir hjúkrunarfræðingar hafi fundið þörfina fyrir
að fara í þetta framhaldsnám í bráðahjúkrun til að vera betur í stakk búnir að takast
á við þau krefjandi verkefni sem fyrir þeim liggja í starfi.“
Þórdís katrín álítur bráðahjúkrunarnámið veita mikilvægan þekkingargrunn um
leið og það dýpkar og styrkir þann góða grunn sem grunnnám í hjúkrunarfræði er
magnús hlynur hreiðarsson
62 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
„Undanfarin ár hefur verið mikið álag á hjúkrunarfræðinga á
landsbyggðinni vegna bráðra tilvika ferðamanna sem hafa verið á
stöðum þar sem ekki er endilega formlegur viðbúnaður eða sjúkra-
stofnun til að sinna þeim fjölda fólks sem raunverulega hefur verið
á svæðinu, t.d. stór umferðarslys á Suðurlandi og önnur slík tilvik.“
Hjúkrunarfræðingarnir, sem mættu á
námskeiðið á Laugarvatni, voru alls staðar
að af landinu og voru sammála um að nám-
skeiðið hefði tekist frábærlega og það hefði
verið gott að koma úr erlinum í sveita-
sæluna á Laugarvatni. Allir voru með
grímur til að gæta fyllstu sóttvarna.
Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson.