Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 73
Stofnfrumuígræðsla af því tagi sem hér er talað um er ekki framkvæmd á Íslandi og
þar til nýlega komu allir Íslendingar sem þurftu á stofnfrumuígræðslu að halda til
Stokkhólms, bæði börn og fullorðnir, og voru það um það bil 10 einstaklingar á ári.
Hjúkrunarfræðingar á ýmsum stöðum innan heilbrigðiskerfisins sinna þessum sjúk-
lingum og því er mikilvægt að viss kunnátta sé til staðar um hvað sjúklingurinn hefur
gengið í gegnum, hvaða áhættu þættir liggja fyrir og hvaða aukaverkanir sjúklingurinn
getur þurft eiga við, stundum það sem eftir er.
Markmið þessarar fræðslugreinar er að auka vitund hjúkrunarfræðinga um
stofnfrumuígræðslu og að hjálpa íslensk um hjúkrunarfræðingum að sinna
þessum stækkandi hópi sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
Stofnfrumuígræðsla
Stofnfrumuígræðsla er fyrst og fremst notuð til meðferðar á illkynja blóðsjúk-
dómum (hvítblæði, mergæxli, eitilfrumukrabbameini og fleira) þó aðrir sjúk-
dómar, eins og meðfæddir ónæmisgallar, séu líka meðhöndlaðir (Quinn og
Stephens, 2006. Yi og Syrjala, 2009). Fyrstu stofnfrumuígræðslurnar áttu sér stað
í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum en urðu ekki algengar fyrr en á þeim átt-
unda (Gahrton og Ringdén, 2012). Mikil framþróun hefur átt sér stað síðustu
áratugi, sérstaklega þegar kemur að þekkingu á frumum líkamans og hvernig
best sé að meðhöndla þær aukaverkanir sem geta komið upp í sambandi við
meðferð ina. Þetta hefur ekki bara aukið lífslíkur töluvert heldur einnig aukið
lífsgæði til muna. Til eru tvenns konar stofnfrumuígræðslur, allogen og autolog
stofnfrumuígræðsla. Allogen stofnfrumuígræðsla er þegar stofnfrumurnar koma
frá gjafa en autolog þegar stofnfrumur eru teknar úr sjúklingnum sjálfum, frystar
og gefnar baka til seinna. Hér verð ur aðallega talað um allogen stofnfrumu-
ígræðslu.
Hvað er stofnfruma?
Stofnfruma er fruma sem býr fyrst og fremst í beinmerg stórra beina og hlutverk
hennar er að framleiða frumur sem eru frumstig annarra blóðfruma líkamans
(rauð og hvít blóðkorn og flögur). Stofnfrumur skipta sér og búa til nýjar stofn-
frumur og þess vegna er hægt að fjarlægja hluta af stofnfrumum einstaklings til
að gefa öðrum án þess að skaða gjafann (Olofsson, 2012).
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 73
Stofnfrumuígræðsla — meðferð í hraðri framþróun
Sólveig Aðalsteinsdóttir
CAST (Cellterapier och Allogen Stamcellstransplantation) er sérstakt svið innan Karolinska há-
skólasjúkrahússins í Stokkhólmi sem einblínir á ýmsar gerðir frumumeðferðar fyrir sjúklinga frá
3 mánaða upp í 75 ára. Sviðið skiptist í legudeild og göngudeild. Stofnfrumuígræðsla hefur verið
meginþáttur þeirrar meðferðar sem fram hefur farið á sviðinu en aðrar tegundir frumumeðferðar
hafa verið að ryðja sér rúms, eins og CAR-T frumumeðferð, og munu að öllum líkindum verða
stærri hluti af þeim meðferðarúrræðum sem í boði verða fyrir sjúklinga í framtíðinni.
Sólveig Aðalsteinsdóttir er sérfræðingur í
krabbameinshjúkrun við Karolinska há-
skólasjúkrahúsið í Stokkhólmi. Í meistara-
námi sínu rannsakaði hún hvernig
stofnfrumuígræðsla getur haft áhrif á kyn-
lífsheilbrigði 2–4 árum eftir meðferð og
upplýsingagjöf heilbrigðisstarfsfólks til
sjúklinga um hugsanlegar aukaverkanir.