Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 106
Hvetjandi þættir:
„Ég sá fleiri kosti út úr þessu en galla“
Allir þátttakendur rannsóknarinnar lýstu mikilli ánægju og
þakklæti yfir að hafa fengið tækifæri til að taka að sér það
viðamikla og krefjandi hlutverk sem þeim fannst starf að -
stoðar deildarstjóra vera. Hvetjandi þáttum í reynslu þátttak-
enda mátti skipta í fjögur undirþemun: aukin tækifæri, áhrif
launa, mikilvægi stuðnings og tækifæri til starfsþróunar.
Aukin tækifæri
Þátttakendur lýstu starfinu sem skemmtilegu en á sama tíma
mjög krefjandi. Þeir sáu mörg tækifæri felast í starfinu fyrir
persónulegan og faglegan þroska eða litu jafnvel á það sem eins
konar stökkpall í starfsferli sínum. Sara sagði: „Fyrir mér er
þetta toppurinn, gæti ekki verið betra.“ Una sá aftur á móti
aðra hvetjandi þætti við stjórnunarstarfið: „Mér fannst spenn-
andi að vera stjórnandi, millistjórnandi, og mér fannst líka
spennandi að vera bara 8–16 mánudaga til föstudaga.“ Fleiri
þátttakendur voru sammála þessu: með dagvinnu skapaðist
meira svigrúm til þess að taka þátt í allri starfsemi deildarinnar
og vera í meiri tengslum við samstarfsfólk auk þess sem
auðveldara var að hafa yfirsýn yfir starfsemi deildarinnar.
Guðrún komst svo að orði: „Mér fannst bara æðislega gaman
að fá þetta starf, mig langaði líka að vera partur af deildar-
stjórateyminu … það er rosa flottur deildarstjóri á deildinni.“
Áhrif launa
Hjá þeim sem enn voru í vaktavinnu varð launahækkunin
töluverð og voru því laun hvetjandi þáttur í starfi þar sem álag
var mikið. Laun höfðu þó ekki afgerandi áhrif á það hvort þátt-
takendur sóttu um aðstoðardeildarstjórastarf eða ekki og
skiptist það nokkuð jafnt hvort laun voru hvetjandi þáttur eða
ekki. Þeir sem fóru yfir í dagvinnu töluðu um að heildarlaunin
væru þau sömu eða jafnvel lægri en áður þar sem vaktaálag og
yfirvinna var ekki lengur í boði. Þeim fannst laun því ekki
endur spegla þá álagsaukningu sem varð í nýju starfi. Þóra
sagði að með tímanum hefðu launin skipt minna máli og að
hún sjálf myndi í dag velja sér verr launað starf í skiptum fyrir
minna áreiti.
Mikilvægi stuðnings
Stuðningur var hvetjandi þáttur sem kom fram hjá öllum þátt-
takendum. Þeir sem fengu mikinn stuðning í starfi töldu það
hafa jákvæð áhrif á starfsánægju sína. Stuðningurinn var mis-
mikill af hálfu yfirmanna, en flestir sögðu frá auknum stuðn -
ingi eftir því sem leið á starfstímann. Stuðningur frá sam -
starfsfólki kom fram hjá flestum en var jafnframt sá stuðningur
sem hafði mikið persónulegt gildi fyrir aðstoðardeildarstjór-
ana. Í upphafi fannst þeim oft og tíðum að þeir þyrftu að sanna
sig í starfi og vinna sér inn traust og álit samstarfsfólks.
Tækifæri til starfsþróunar
Markmið aðstoðardeildarstjóranna voru ólík, en öllum fannst
starfið vera mjög lærdómsríkt og hvetjandi. Tækifæri til starfs -
þróunar skipti einna mestu máli. Slík tækifæri jukust í nýju
starfi og ýttu undir áhuga þeirra til þess að þróast í starfi og
vilja til þess að vinna áfram hjá stofnuninni. Þeir sem ekki fengu
tækifæri til starfsþróunar lýstu ákveðnum vonbrigðum því ný
staða gaf þeim von um aukna starfsþróun sem svo stóðst ekki.
Voru þeir farnir að huga að starfi annars staðar vegna þessa.
sandra sif gunnarsdóttir og sigríður halldórsdóttir
106 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Aukin tækifæri
Áhrif launa
Mikilvægi stuðnings
Tækifæri til starfsþróunar
Mikið álag
Lítill stuðningur og skortur á aðlögun
Álag vegna mönnunarvanda
Aldursfordómar
Aukið aðgengi
Álag vegna vaktavinnu og óunninna
verkefna
Bjargráð
„Ég sá fleiri kosti út úr þessu en
galla“ — Hvetjandi þættir
„Vil vera aðgengileg en þetta er
líka truflun“ — Samræmi milli
einkalífs og vinnu
„Verkefnin eru óteljandi einhvern
veginn“ — Hindrandi þættir
„Ég er einhvern
veginn með metnaðinn
í botni“
Mynd 1. Heildargreiningarlíkan, yfirlit yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar