Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 7
standa þannig að það liggi fyrir hver laun hjúkrunarfræðinga
verði þegar upp er staðið. Þó við höfum háð þessa launabaráttu
undanfarin 100 ár — í landi jafnréttis og á ári hjúkrunarfræð-
inga 2020 — þá er ljóst að henni er alls ekki lokið. heilbrigðis-
kerfið verður ekki rekið án okkar og höfum við í ár enn einu
sinni sönnur fyrir því. Við leggjum ekki árar í bát, nýtum okk -
ur það sem áunnist hefur, söfnum fleiri verkfærum í kist una
og höldum baráttunni áfram. Ég hef þá trú að virð ingin, sem
enn frekar hefur skapast í ár á störfum hjúkrunarfræðinga,
muni skila sér þó síðar verði.
Settu grímuna fyrst á þig
En faraldrinum er ekki lokið. Við stöndum frammi fyrir því
að veiran verður hluti af okkar veruleika þar til bólusetning
við henni finnst. hér á landi búum við við betra starfsumhverfi
og öryggisbúnað en víða um heim. Það er ljóst að öruggt og
heilsusamlegt starfsumhverfi, með þeim búnaði sem til þarf,
er einn mikilvægasti þátturinn í starfsumhverfi okkar. félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga mun eftir sem áður fylgja því eftir
að atvinnurekendur tryggi öryggi og heilbrigði hjúkrunar-
fræðinga við störf eins og Vinnueftirlitið mælir til um. nú
fremur en nokkru sinni fyrr getur það skipt sköpum að greina
vel á milli vinnu og einkalífs og gera það eins vel og hugsast
getur. Sú vegferð er vandrötuð því á sama tíma og þetta skal
haft í heiðri er mikil eftirspurn eftir hjúkrunarfræðingum til
starfa og hafa yfirvöld m.a. biðlað til okkar um aukið vinnu-
framlag.
Ég geri mér grein fyrir að það togast hér á tveir pólar, og í
ofanálag er þegar mikið álag á hjúkrunarfræðingum vegna far-
aldursins. Þess heldur skiptir miklu máli að hlúa vel að sjálfum
sér á milli vakta, eiga gæðastundir með fjölskyldunni sinni,
gera eitthvað jákvætt og uppbyggilegt fyrir sjálfan sig, jafnt lík-
amlega sem andlega.
Þetta ár verður í minnum haft. gerum áfram okkar besta,
lærum af reynslunni og verum góð hvert við annað.
2020
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 7
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði víðs vegar um landið og erlendis. Eignirnar
þurfa að vera snyrtilegar, fullbúnar húsgögnum og öðrum viðeigandi búnaði.
Átt þú orlofseign sem þú vilt leigja?
Áhugasamir sendi upplýsingar á hjukrun@hjukrun.is
540 6400.