Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 56
sjálfir öll lyf og allan búnað, þ.e. nálar, sprautur, æðaleggi, vökvasett o.s.frv. apótek
var á sjúkrahúsinu þar sem hægt var að kaupa lyfin og búnaðinn.
Sjúklingar lágu á herbergjum með mörgum öðrum og í flestum tilfellum fylgdi
stórfjölskyldan með sjúklingunum, börn, makar, foreldrar, afar, ömmur, frændur og
frænkur. Því voru stofurnar á sjúkrahúsinu mjög þéttsetnar. fjölskyldan sinnti þeirra
helstu þörfum sem og að aðstoða við klósettferðir, að klæða sig og fleira. fjölskyldan
kom með allan mat og sátu oft stórfjölskyldurnar á göngunum að borða. klósettin á
sjúkrahúsinu voru holur eins og tíðkast á indlandi. Sjúkrahúsið var mjög óhreint,
veggir og gólf mjög skítug, rúmin voru óhrein og maurar skriðu um alla veggi og
rúm. rusli var hent út um glugga á sjúkrahúsinu, alls konar matarleifum, úrgangi,
lyfjaafgöngum, nálum o.fl., og safnaðist það fyrir á gluggasyllum sjúkrahússins með
tilheyrandi lykt og pöddum.
Sjálfboðaliðastarfið mitt fól í sér aðallega að gefa lyf í æð eða vöðva, en hjúkrunar -
fræðingarnir á deildinni sinntu eingöngu lyfjagjöf og skráningu. Læknar fóru svo
sinn stofugang eins og tíðkast einnig hérlendis. flestir læknarnir voru ungar konur
að læra lækningar og þetta þótti mér mjög skemmtilegt að sjá miðað við ríkjandi
karlamenningu indlands.
Búnaður á sjúkrahúsinu var af skornum skammti, spritt var ekki til á sjúkrahúsinu
eða að minnsta kosti ekki til notkunar fyrir hjúkrunarfræðinga eða sjúklinga. Við
þvoðum hendurnar með sápustykki sem allir deildu og hanska sá ég aðeins einu
sinni og þá héngu þeir til þerris eins og ætti að endurnýta þá. Ég keypti mér spritt
sem ég hafði á mér alla daga og hvatti samstarfsfólk mitt til að hósta í olnboga og gaf
því spritt til að spritta hendur á milli sjúklinga. Ég held að þeim hafi fundist ég stór-
eyrún gísladóttir
56 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020
Sjúkrahúsið var mjög óhreint, veggir og gólf mjög skítug, rúmin
voru óhrein og maurar skriðu um alla veggi og rúm. Rusli var hent
út um glugga á sjúkrahúsinu, alls konar matarleifum, úrgangi,
lyfjaafgöngum, nálum o.fl., og safnaðist það fyrir á gluggasyllum
sjúkrahússins með tilheyrandi lykt og pöddum.
Herbergi á sjúkrahúsinu.
Ég fann ruslafötu á einum stað á sjúkrahús-
inu, hér er ýmis úrgangur, vökvasett, nálar,
matarleifar o.fl. Í bakgrunni má sjá kló-
settin.