Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 65
Heilaslag — tegundir, algengi
og afleiðingar
Áætlað er að á heimsvísu fái einn af hverjum sex heilaslag á
lífsleiðinni sem gerir meira en 13,7 milljónir manns árlega
(http://world-stroke.org). Heilaslag er alvarlegt áfall. Til að
mynda deyr ein manneskja vegna heilaslags á 40 sekúndna
fresti í Bandaríkjunum og er þetta önnur algengasta dánaror-
sök í hinum vestræna heimi og algengasta orsökin fyrir fötlun
fullorðinna (Benjamin o.fl., 2019; Regenhardt o.fl., 2017; World
Health Organization, 2017). Heilaslag ógnar heilsu, sálfélags-
legri vellíðan fólks og afleiðingar þess geta skert lífsgæði
(Benja min o.fl., 2019; Yu og Kapral, 2019). Heilaslag er einnig
afar kostnaðarsamt fyrir samfélagið. Í því samhengi má nefna
að 69% af þeim sem útskrifast heim eir heilaslag geta ekki
snúið aur til vinnu og einn af fimm er háður umönnun að -
standenda (Stroke Association, 2016).
Heilaslag hefur verið skilgreint sem skyndileg skerðing á
starfsemi taugakerfisins sem varir lengur en í sólarhring og
orsakast af truflun á blóðflæði til heilans. Heilaslag skiptist í
tvær megintegundir: (1) heilablóðþurrð og (2) heilablæðingu.
Talið er að 80–85% tilfella séu vegna blóðþurrðar (Watkins og
Cadilhac, 2020). Heilablóðþurrð orsakast af skertu blóðflæði
sem verður vegna þrengingar eða stíflu í æð sem nærir ákveð -
inn hluta heilans. Stífla í stórum æðum verður oast vegna
blóðsegamyndunar frá hjarta eða aðlægum æðum eða vegna
æðakölkunar. Stíflur í litlum æðum heilans eiga sér ýmsar
skýringar, meðal annars smáæðasjúkdóma (Denny o.fl., 2020).
Þrátt fyrir að tilfellum heilablóðþurrðar hafi almennt
fækk að vegna aukinna forvarna og betri meðferðar, er álitið
að þeim muni samt ölga þar sem lífaldur fólks fer hækkandi
og heilaslag er algengara hjá öldruðum einstaklingum en
ungum (Benj a min o.fl., 2019; Li o.fl., 2020).
Á Íslandi fá um það bil 400 einstaklingar heilaslag á hverju
ári eða rúmlega einn á dag. Um 250 þeirra leggjast inn á tauga-
lækningadeild Landspítala (Ólafur Sveinsson o.fl., 2014). Ný -
gengi heilaslags á Íslandi er 144 á hverja 100.000 íbúa og er
81% vegna heilablóðþurrðar (Hilmarsson o.fl., 2013). Um
þriðjungur þeirra á á hættu að fá heilaslag aur ef ekki er
gripið til fyrirbyggjandi meðferðar (Benjamin o.fl., 2019).
Bráðaheilaslag
Einkenni blóðþurrðarslags byrja yfirleitt skyndilega og geta
versnað hratt, á nokkrum mínútum eða klukkustundum. Hröð
viðbrögð við upphaf einkenna skipta miklu máli til þess að
minnka líkur á óaurkræfum skaða (Powers o.fl., 2019; Puig
o.fl., 2020). Algeng einkenni blóðþurrðarslags eru: sjóntrufl-
anir (tvísýni, skert sjónsvið), skyndilegt máttleysi eða lömun
útlima eða andlits, þvoglumæli eða erfiðleikar við tal, truflun
eða skerðing á hreyfigetu og jafnvægi. Einkennin fara eir því
hvar staðsetning heilaslagsins er (Williams o.fl., 2020).
Jaðarsvæði
Í kjölfar blóðþurrðarslags myndast drep í heilavefnum sem
kallast drepkjarni (e. ischemic core). Taugafrumurnar í drep-
kjarnanum deyja nánast um leið og blóðsegamyndun hefur átt
sér stað. Umfang heiladreps fer eir staðsetningu og stærð
blóðsegans. Í kringum drepsvæðið myndast svokallað jaðar -
svæði (e. penumbra) sem liggur í dvala vegna minnkaðs blóð -
flæðis og skertra efnaskipta. Jaðarsvæðið er í mikilli hættu á
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 96. árg. 2020 65
Meðferð sjúklinga fyrstu þrjá sólarhringana
eftir blóðþurrðarslag í heila
Hlutverk hjúkrunarfræðinga í skimun á hita, blóðsykri og kyngingu:
Fræðileg samantekt
Marianne E. Klinke1,2, Gunnhildur Henný Helgadóttir2, Lilja Rut Jónsdóttir2,
Kristín Ásgeirsdóttir1, Jónína H. Hafliðadóttir1
Í þessari grein verður allað um helstu orsakir og einkenni blóðþurrðarslags og hvað það er
sem gerist í heilanum þegar einstaklingur fær slag. Heilbrigðisstafsmenn nota oft orðatiltækið
,,tímatap er heilatap“, en hvaða merkingu hefur það í raun og veru? Varpað verður ljósi á mikil -
vægi réttra viðbragða í bráðameðferð sem og mikilvægi sérhæfðrar heilaslagseiningar. Rann-
sóknir sýna að sérhæft eftirlit og meðferð hjúkrunarfræðinga við hækkuðum hita og blóðsykri
í kjölfar heilaslags, ásamt því að bregðast við kyngingarerfiðleikum fyrstu þrjá sólarhringana
eftir áfallið, hefur jákvæð áhrif á batahorfur sjúklinga. Til þess að efla þekkingu hjúkrunarfræð-
inga á þessum þáttum er stuðst við niðurstöður fræðilegrar samantektar.
1 Taugalækningadeild B2 Landspítala-háskólasjúkrahúss
2 Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands