Blik - 01.05.1957, Side 126
124
B L I K
'------------------------------------------------------------------------------------------------------------—-------------->.
Eg þakka
Arsritið okkar er nú stœrra og meira að vðxtum en nokkru sinni fyrr.
Dálítill snefill af vissri mannlegri tilfinningu bœrist með mér og veldur fwi,
að cg hefi lagt óvenju mikla vinnu i ritið nú og teflt á tæpasta vaðið um
f járhag þess. Ástrcðan er sú,. að ég hefi á þessu ári lokið 30 starfsárum hér
i Eyjum.
Unglingaskóla Vestmannaeyja tók ég við 28. sept. 1927 með 9 nemendum.
Mér hnykkti við. I>á munu hafa búið hér rúmlega 3 þúsundir manna. Þá var
skólinn einnig á hrakhölum með húsnœði og mörg ár eftir það.
Arið 1936 hófum við að gefa lít ritið okkar, Blik. Þá eina örk þrisvar á
ári, samtals 48 blaðsíður. Þá þegar mœttum við velvild og skilningi um út-
gáfu ritsins og nutum fjárhagslegs stuðnings ýmissa mœtra manna.
Við samanburð á fortið og nútið verður naumast annað ályktað en að
nokkuð hafi áunnizt i starfinu í heild.
Við þessi timamót er það fjarri mér að minnast ekki með þakklæti þeirra
manna og kvenna hér i bœ, sem breði fyrr og siðar hafa mcett mér miðra
garða i starfi með velvild og skilningi, hvatt og styrkt i orði og verki. Þeim
fccri ég nú öllum minar alúðarfyllstu þakkir. — Engan skugga ber á minn-
ingar minar frá liðnum árum, þó að Eyjabúar hafi ekki allir verið á eitt
sáttir um störf min og stefnur i upþeldis- og frceðslumálum eða öðrum at-
höfnum. Frá minum bæjardyrum séð, hafa þau átök jafnan orðið störfunum
til framdrdttar, brýnt viljann og elft starfsorkuna. Lognmollan er oft verst
og veldur minnstri grósku. Að því gœt.i ég fcert skýr rök með dcemum úr
bcejarlifinu.
Uppeldismálin verða jafnan öðrum þrceði mál málanna i sérhverju bæj-
ar- og sveitarfélagi. Þau eru bæði margþætt og vandasöm. Ég vona, að mér
endist enn lieilsa og lif næstu ár til þess að vinna að þessum málum hér me.ð
Eyjabúum og fyrir þá.
Þá þakha ég sumkennurum minum góð og ánægjuleg samstörf þessa liðnu
áraiugi. Við íhugun og hugleiðingar finnst mér, að þeir hafi lang flestir ve»ið
samvizkusamir og skylduræknir kennarar, eftir þvi sem efni stóðu til með
hverjum einum.
fið höfutn viljað og viljutn vinna að heill og hamingju æskulýðsins,
honum sjálfum og þjóðfélaginu til láns og lifs, efla barnalán foreldra eða
bjarga þvi og koma sem allra flestum til nokkurs þroska. Þetta verðtir
einnig kjarninn i kjörorði okkar og skólans um ókomin ár.
ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON.