Blik - 01.05.1958, Page 27

Blik - 01.05.1958, Page 27
B L I K 25 5. Guðrún Þórðardóttir Jörðin Tún hér í Eyjum er ein af Kirkjubæjajörðunum og talin vera Vs af Kirkjubæjatorfunni. Upp úr miðbiki aldarinnar síð- ustu höfðu ýmsir búendur setið jörðina og enginn fastur. Árið 1862 fluttist að Túni ekkja Carls Ludvigs Möllers verzlunarstjóra með 4 börn. Hún hét Ingibjörg Þorvaldsdótt- ir Möller og var alltaf titluð madama eftir að hún giftist, eins og siðvenja var urn konur verzl- unarstjóra, sem höfðu mikla fjármuni undir höndum. Með mad. Ingibjörgu fluttist að Túni ung stúlka, sem Guð- rún hét Þórðardóttir frá Götu í Eyjum, þá 23 ára, og gerðist vinnukona hjá madömunni. Faðir Guðrúnar var Þórður í Götu Árnason bónda Þórðarson- ar í Holti og Garðakoti í Sól- heimasókn Sveinssonar prests í Kálfholti. Kona Áma bónda var Guðrún yngri frá Vatns- skarðshólum Þorsteinssonar Eyjólfssonar bónda í Áshól í Holtum Jónssonar. Guðrún Þórðardóttir var f ædd 11. des. 1839. Mad. Ingibjörg bjó í Túni 1 6 ár eða til ársins 1868. Flutti hún þá af jörðinni sökum fá- tæktar. Það sama sumar fékk Jón Vigfús Vigfússon byggingu fyrir Túni og fluttist þangað með dætur sínar tvær, Pálínu og Sigríði. Jörðin var þá talin fóðra eina kú og eitt hross og hafa hagagöngu handa 12 sauðum á Heimalandi og 6 sauðum í Suð- urey. Fýlatekíju hafði hún á báðum þessum stöðum, svo og í Brandi, Geldung og Súlnaskeri. Guðrún Þórðardóttir réðist nú bústýra til Jóns Vigfússonar, hins nýja bónda í Túni, sem sé varð kyrr í Túni, þegar madam- an flutti þaðan. Árið 1870 fluttist svo Sigríð- ur Einarsdóttir að Túni til Jóns sonar síns eins og áður segir. Sama ár fæddust þeim Jóni bónda og bústým hans tvíburar, tvær stúlkur, sem skírðar voru Þórunn og Jónína. Nokkru síðar giftust þau Jón og Guðrún. — Jónínu dóttur sína misstu þau mjög bráðlega, en Þórunn lifði, óx og dafnaði vel. Það var hin góðkunna merkiskona hér í bæ, Þómnn í Þingholti. Önnur börn Jóns og Guðrúnar voru þessi: Vigfús, útgerðarmaður í Holti hér í Eyjum, fæddur 1871, Guðjón, bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum hér, fæddur 1874, Jóhann, trésmiður að Brekku (Faxastíg 4) hér, fæddur 1876, Guðrún Karitas, fædd 1878, Sigurlín, húsfreyja í Túni, f. 1882. Þegar Sigríður Einarsdóttir var komin hátt á áttræðisaldur, tók henni að daprast sjón. Dætur Jóns að fyrra hjóna-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Blik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.