Blik - 01.04.1959, Page 109
B L I K
Fyrri
þjóðbátíðardagur
107
/ 37 dr
ár, þá er það ekki lítið þegnskyldu-
starf í þágu íþróttafélaganna og alls
almennings og ef til vill margur
fengið fálkaorðuna fyrir minna.
Margt fyndið orð hefur fokið af
vörum Stefáns Árnasonar í þular-
starfi hans öll þessi ár. Þess er
minnzt hér í Bliki nú með nokkrum
vísum.
Stefán Árnason, eftir að hann útvegaði
sér glimskrattatrektina, tœkni þess tíma,
sem hann notaði i mörg ár, þvi að ekkert
betra var fáanlegt. Myndin er tekin 1924.
Við gerum hér Stefáni Áma-
syni upp orðið eftir heyrt og
séð:
Nú er hátíð hugum í,
hagstæð ljátíð gengin.
Tröllin fátíð finna að því,
að fólks er vátíð engin.
Því skal halda í Herjólfsdal
há skal alda rísa
gleði; tjalda í töfrasal,
teitifalda hýsa.
Síðari
þjóðháúðardagur
Lag: Komir þú á Grænlandsgrund.
Halló, menn og fögur fljóð,
fátt er nú, sem heftir,
nælonsokk og nátthöld góð
nóttin skildi eftir.
Teygjubönd og tanngarðar,
tyggigúm og lokkar,
drósahöld og duftfarðar
Dalinn þakti okkar.
Sem sé: Fundizt feiknin öll,
— fráleitt nokkur hrekkur, —
inn um Dal og út um völl
og upp um hlíðar-brekkur.
Komið hingað kappafans,
konur, börn og meyjar,
sækið fundið. Síðan dans
svarri um Vestmannaeyjar.