Blik - 01.04.1959, Page 112
110
B L I K
Myndin til hcegri: EYSTRI GJÁBAKKI, JARÐARHÚS
Að öllum líkindum er hús þetta byggt 1895. Árið áður, 8. des. 1894, fékk Þorkell
Jónsson, bróðir Einars bónda i Norðurgarði, byggingu fyrir Eystri-Gjábakka. Árið
eftir mun hann hafa byggt húsið. Þorkell Jónsson fluttist til Vesturheims árið 1902
eða 1905.
GAMLI BÆRINN A STORA-GERÐI, byggður 1901.
Þar stóð áður litill bœr með hárri burst. Torfþak var á, en stafnar úr timbri.
Litill gluggi var á livorum stafni. Það bcejarhús sneri norður og suður en eldhús
til hliðar.
Bœr sá, sem hér birtist mynd af, snýr frá austri til vesturs og sér hér norðurhlið
hans. Eldhús er i vesturenda.
Arið 1866, 16. júní, var J. P. Bryde, kaupmanni, byggð jörðin Nyrðra-Stóra-Gerði,
er var „feituliðug“ við burtför ekkju Chr. Magnússonar, verzlunarmanns og flutti
kaupmaðurinn þangað sama ár.
Arið 1888, 21. 'júni fékk Guðlaugur Jónsson, faðir Stefáns i Gerði, byggingu fyrir
Syðra-Stóra-Gerði. Bróðir Guðlaugs, Jón, fékk þá um likt leyti byggingu fyrir hinni
Gerðisjörðinni, Nyrðra-Stóra-Gerði. Foreldrar þeirra bceðra voru hjón á Presthúsum.
Jón bóndi Jónsson byggði bœinn, sem myndin er af. Hann var giftur Guðbjörgu
Björnsdóttur, systur hinna kunnu bænda hér, Guðjóns á Kirkjubóli og Finnboga
i Norðurgarði. Guðbjörg var fœdd undir Eyjafjöllum 25. júni 1855. Hún dó i gamla
bœnum sinum 4. mai 1955. Jón bóndi dó 1925.
Jón og Guðbjörg voru foreldrar Jóninu og Bjöms, sem nú búa i Gerði. Steinhús
það, er þau búa i, var byggt 1907. Þ. Þ. V.