Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Page 14
12
Á því 30 ára tímabili, sem hitamælingarnar ná yfir, fer hitamagnið
vafalaust vaxandi, og sést þetta bezt þegar reiknuð eru út meðaltöl fyrir
tíu ára tímabil. Til samanburðar er tekinn meðalhiti og hitasumma fyrir
maí—sept. frá Akureyri og Reykjavík/Sámsstöðum fyrir tímabilið 1920—
1941 og sést, að þar hefur þróunin orðið mjög í sömu átt.
Veðurathuganir hefjast ekki á Sámsstöðum fyrr en 1928 að tilrauna-
stöðin tekur þar til starfa, en frá 1920—1927 eru notaðar hitamælingar frá
Reykjavík. Er hvort tveggja, að tilraunastöðin var þá þar, og svo telur
Klemenz Kristjánsson, að hitinn í Reykjavík og á Sámsstöðum sé mjög
áþekkur sumarmánuðina. Svo langt, sem samanburðurinn nær, hefur
hitinn á Eiðum verið nokkru lægri heldur en á Akureyri og Sámsstöðum,
en munurinn virðist hafa farið minnkandi. Svo virðist, sem vorin séu oft
fremur köld og þurr á Eiðum en haustin tiltölulega hlý. Hitinn á Eiðum
og Akureyri fylgist nokkurn veginn að en sveiflast ekki ætíð á sama hátt
í Reykjavík og á Sámsstöðum. Þetta er mjög skiljanlegt. Köldu sumrin
verða tiltölulega kaldari á Norður- og Austurlandi heldur en sunnan-
lands, en heitu sumrin líka hlutfallslega hlýrri.
Ekki hefur verið reynt að bera saman lágmark eða hámark hitans á
þessum stöðum, og er örðugt að fá þar um sambærilegar tölur, vegna þess
hve athuganirnar á Eiðum eru sundurslitnar, en líklega er talsvert hætt
við næturfrostum á Eiðum vor og haust.
Verður svo ekki fjölyrt frekar um hitamælingar þessar.
Annar meginþáttur veðurfarsins er úrkoman, en á Eiðum hafa úr-
komumælingarnar verið ennþá meira í molum heldur en hitamælingarn-
ar og við engar aðrar að styðjast, því að á Nefbjarnarstöðum var úrkoman
ekki mæld. Einna samstæðastar eru regnmælingarnar á Eiðum yfir sumar-
mánuðina, en þótt sumarúrkoman, og þá einkum úrkoma vorsins, skipti
miklu máli fyrir sprettuna, þá gerir úrkoman á öðrum árstíðum það
einnig og þá helzt síðari hluta vetrar, en hvort tveggja er, að úrkomumæl-
ingar voru aðeins gerðar á Eiðum með höppum og glöppum á veturna
og þær virðast einnig hafa verið mjög ónákvæmar, því væri úrkoman
snjór, tókst sjaldan að hemja hann í mælinum. Til þess að láta þetta þó
eitthvað heita, hefur verið tekin saman tafla yfir þær úrkomumælingar,
sem til eru fyrir mánuðina apríl—sept., og hefur síðan verið reiknuð út
meðalúrkoma þessara mánaða af þessum athugunum. Nákvæmni þessara
talna er þó vafalaust lítil, því að samstæðar athuganir ná yfir aðeins fá
ár. Samkvæmt þessum útreikningum er úrkoman lítil á vorin, einkum í
maí—júní, en vex, þegar líður á sumarið. Þetta er ekki óáþekkt því, sem
á sér stað á Akureyri. Hins vegar virðist úrkoman þessa sex mánuði varla
ná 2/5 hlutum af úrkomunni á Sámsstöðum á sama tíma. Ógerlegt er að
fullyrða nokkuð um ársúrkomuna á Eiðum, en ekki er ósennilegt, að hún