Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Blaðsíða 21
19
Er munurinn vitanlega mestur, þegar vorin eru þurr, og eru í því sam-
bandi einkum til nefnd vorin 1928 og 1933.
Þótt ekki væri borið á b fyrr en jörð var freðin í október, kom það
nokkrum sinnum fyrir, að hún þiðnaði aftur fljótlega eftir breiðsluna
og hélzt þá stundum lengi þíð. Þetta átti sér t. d. stað 1932, 1933 og 1934.
Vorið 1932 er tekið fram, að snjór hafi komið ofan á aprílbreiðsluna og
legið lengi. Árið 1936 var ekki hægt að koma á apríldreifingunni fyrr en
29. apríl vegna svella, og eitthvað áþekkt virðist hafa tafið breiðsluna
vorið 1935.
Uppskeran af tilrauninni er alltaf heldur léleg, þrátt fyrir mikið á-
burðarmagn eftir 1933. Oftast er slegið seint, líklega vegna þess, hve seint
sprettur, og verður háin því lítil og heyprósent oft há, einkum fyrstu árin.
Uppskeran er vegin grasþurr og svo aftur þurr, þurrkuð úti á reitunum,
og virðist þurrkunin oftast hafa gengið vel. Þó er fram tekið, að 1930 hafi
háin aldrei fullþornað.
Það skal tekið fram, að fyrsta árið, 1928, gerði fönn svo snemma, að
ekki tókst að breiða októberbreiðsluna. Uppskera þessa árs er þó tekin
með á töflur V og VI, en sleppt við alla útreikninga, svo sem meðaltöl,
skekkju o. s. frv. Hér á eftir skal nú rakið, hvenær borið er á tilraunina,
hún slegin og uppskeran vegin þurr árlega.
Ar Aburður borinn á tilraunina Sl.l.sinn Þurrt Sl. 2.sinn Þurrt
1928 .... 18. sept. 17. apr. 3. maí 14. júlí 18. júlí 6. sept. ii. sept.
1929 ... . 18. — 15. okt. 9. — 8. — 15. — 17. — 2. _ 6. —
1930 .... 16. — 18. — 9. — 3. — 14. — 21. — 4. — 13. —
1931 .... 20. — 15. — 20. — 8. — 21. — 3. ág. 9. — 12. —
1932 .... 25. — 10. — 11. — 13. — 11. — 18. júlí 5. — 8. —
1933 .... 22. — 5. — 24. — 6. — 12. — 19. — 1. — 6. —
1934 . ... 22. — 10. — 15. — 7. — 16. — 24. — 16. — 22. —
1935 .... 28. — 17. — 29. — 7. — 15. — 18. — 5. — 9. —
1936 .... 20. — 10. — 29. — 8. — 7. — 23. — 1. — 14. —
1937 .... 21. — 10. — 16. — 6. — 16. — 27. — 5. — 12. —
1938 .... 20. — 10. — 15. — 5. — 21. — 2. ág* 3. — 10. —
1939 .... 25. — 18. — 18. — 3. — 12. — 19. júlí 12. — 16. —
1940 ... . 20. — 16. — 20. — 5. — 11. — 13. — 2. — 5. —
1941 .... 16. - 15. - 25. - 8. - 8. - 15. - 20. ág. 1. -
Frávikin í áburðar- og sláttutímum eru ekki mikil. Áburðartímarnir
sveiflast milli 16. og 28. sept., 10. og 18. okt., 9. og 29. apríl og 3. og 13.
maí, en sláttutímarnir milli 7. og 21. júlí og 1. til 16. sept., að einum
undanskildum, sem er 20. ágúst.