Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Blaðsíða 83
81
verið næsta iábreytt, og litla fræðslu er að finna um tilhögun hennar.
Þó er nokkurn veginn víst, að tilraunin hefur verið einföld og að settar
hafa verið árlega fOO kartöflur af hverju afbrigði. Um vaxtarrými eða
reitastærð er ekkert sagt, en gera má ráð fyrir, að Jrver reitur liafi verið
um 15 m2, og getur þar ekki skeikað miklu.
Hér fer á eftir hvenær sett var niður og tekið upp og athugasemdir
um frost þau ár, sem þessi atliugun var gerð:
Ár Sett niður
1935 .... 29. maí
1936 .... 19. -
1937 .... 29. -
1938 ... . 8. júní
Tekið upp
4, - 5. okt.
29.—30. sept.
25.-26. -
5. — 6. okt.
Atliugasemdir:
Þrjár frostnætur fyrst í sept. eyðil. grasið.
Grasið fraus niður 30. júní og 30. ágúst.
Þrál. vorkuldar. Grasið fraus í byrjun sept.
Tegundirnar, sem reyndar voru öll árin, voru níu, og var uppskeran
flokkuð í þrennt: Stórt, meðalstórt og smátt. Þá er athugun á útsæðis-
magninu sum árin. í töflu XXII er þetta umreiknað á lia. Stóru og meðal-
stóru er slengt saman og nefnt notlræf uppskera.
Sjö fyrsttöldu afbrigðin voru fengin frá Hákoni Finnssyni á Borgum
í Hornafirði, en tvö þau síðasttöldu voru fyrir í gróðrarstöðinni. Tvö af-
brigðin frá Borgum, Arron Consul og King George, hafa augljóslega
verið eitthvað gölluð fyrsta árið, því að uppskeran, sem þau gefa, er óeðli-
lega lítil, og er hún ekki tekin með í meðaltalið. Dálítið mun hafa borið
á stöngulveiki í sumum tegundunum, t. d. Eyvindi. Athyglisvert er, hve
vel Rauðar íslenzkar gefast öll árin, og virðast þær, sem fengnar voru að,
hafa reynzt heldur betur, en þó er eigi sá munur á þeim, að mikið sé upp
úr honum leggjandi. Auðvitað er smælkið mikið, en það er þó nothæfara
heldur en smælki annarra afbrigða, og svo vinnst þetta líka nokkuð upp
vegna þess, að hægt er að komast af með minna útsæði af þeim rauðu
lieldur en flestum öðrurn kartöflum, og sterkjumagn þeirra er mikið.
Uppskeran, sem kartöflurnar gefa tvö fyrstu árin, má teljast mjög
sæmileg og ekkert árið mjög íéleg, en auðvitað er þessi samanburður
liarla ónákvæmur, þar sem samreitir eru engir.
Líklega er hættan á næturfrostum rnikil á Eiðum bæði vor og haust.
Til samanburðar má geta þess, að þessi sömu ár gáfu Rauðar íslenzkar
að meðaltali 218.3 likg heildaruppskeru af ha, Up to Date 268.0 hkg og
Eyvindur 163.8 hkg í Gróðrarstöðinni á Akureyri.
18. Kornyrkja.
Árin 1935—37 eru gerðar lítilsháttar athuganir með kornyrkju í
gróðrarstöðinni á Eiðum. Þessar tegundir eru reyndar: Dönnesbygg,
Lökenbygg, Holtbygg, Niðarhafrar, Þrændarúgur og rúgur frá Sáms-
ll