Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Blaðsíða 94
92
Ar Slegiðl.sinn Hirt Slegið 2. sinn Hirt
1939 ................ 26. júní 11. júlí 23. ágúst 28. ágúst
1940 ................ 6. júlí 12. — 10. sept. 22. sept.
1941 ................ 17. — 21. - 21. ágúst 3. -
1942 ................ 10. - 19. - 8. sept. 15. -
Þegar að því er gætt, hvenær fyrri sláttur er sleginn og svo, hve fyrri
sláttur er mikill hluti uppskerunnar (sjá töflu XXV), getur ekki dulizt,
að of seint er slegið til þess að hagkvæmt sé fyrir þrif og áhrif smárans.
Þrátt fyrir þetta er oft vikið að því, að smárinn lifi í tilrauninni og að
hans gæti mest í síðar slætti. Þannig segir um árið 1939, að á þeim átta
reitum tilraunarinnar, sem hærra lágu, hafi smárinn vaxið hægt, einkum
framan af, en betur í þeim átta reitum, sem lágu lægra og voru betur
vaxnir. A smáranum voru vel þroskuð rótaræxli. — Árið 1940 er ekki
minnzt á smárann, en árið 1941 segir, að smáravöxturinn sé sæmilegur,
dálítið skellóttur og mestur í hánni, og síðasta árið, sem tilraunin er gerð,
segir, að smárinn sé að aukast og sé sæmilega hávaxinn. Nokkur vaxtar-
auki virðist líka verða af smáranum síðari árin, en nægir þó aðeins til
að jafna halla fyrstu áranna, svo að meðaltali verður vaxtaraukinn eng-
inn, þegar aðeins er litið á uppskerumagnið eitt, en þá er óvíst, hvort
gæði uppskerunnar kunna að hafa verið misjöfn, t. d. meira protein í
heyinu af smárareitunum. Líklegt er, að ef tilrauninni hefði verið haldið
áfram og þess gætt, að slá hæfilega snemma, þá hefði smárinn gefið hækk-
andi vaxtarauka.
Bæði á Akureyri og á Sámsstöðum hafa verið gerðar tilraunir með
vaxandi hlutdeild hvítsmárafræs í fræblöndunni og með miklu betri
árangri en á Eiðum.
Hér fer á eftir samanburður á þessu í hkg af heyi á ha (hlutfallstölur
í svigum):
Sraáralaust
Eiðar, 4 ára meðaltal . . 62.5 (100)
Akureyri, 3 ára meðaltal 46.6 (100)
Sámsstaðir, 5 ára meðalt. 52.2 (100)
20% smári 30% sraári
62.7 (100) 59.7 (96)
61.8 (133) 61.9 (133)
55.2 (106) 55.5 (106)
40% smári 60% smári
62.6 (100)
65.3 (140)
56.2 (108) 61.9 (119)
Á Sámsstöðum var bæði hvítsmári og rauðsmári í blöndunni. Á Ak-
ureyri var smárafræið í blöndunni 12.5, 25 og 50%.
Skekkjan á tilraun þessari er nokkuð há, m = ± 188 kg heys á ha og
m/m = ± 264 kg hey á ha. Það er því mjög fjarri því, að tilraunin sýni
nokkurn raunhæfan mismun, þegar hún er tekin sem heild; og líklega
gera einstök ár það ekki heldur. Þó má vera, að smárinn hafi gert gagn
og að meira hefði kveðið að honum, ef tilrauninni hefði verið haldið
lengur áfram.