Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Blaðsíða 73
71
ha. Vaxtaraukinn umfram a verður 2961 kg og til viðbótar vaxtarauki af
hálfum búfjáráburði, sem er um 800 kg, eða samtals 3761 kg, og virðist
í þessu ágætt samræmi. Þetta er þó bundið þeim skilyrðum, að áburðar-
þörfin sé svo mikil, að lítið dragi úr henni með þeim skömmtum, sem
notaðir hafa verið, og að fosfór- og kalíþörfinni sé fullnægt með þeim
búfjáráburði, sem borinn er á, og verður ekki annað séð. Af þessu er ljóst,
að tilbúni áburðurinn, þ. e. saltpéturinn, virðist hafa gefið betri raun í
þessari síðari tilraun heldur en í þeirri fyrri, og verður það varla skýrt á
annan hátt en að notagildi búfjáráburðarins aukist, þegar saltpétur er
notaður með honum. Þetta munar þó ekki miklu, og taka verður með í
reikninginn, að undirstaða þessa reiknings er ekki örugg.
Niðurstöður tilraunarinnar mega teljast mjög öruggar. F-gildið fyrir
liði er 322.6***, m = ± 76 og m/m = ± 104 kg af heyi á ha. Vaxtar-
aukinn er þannig:
Kg hey af ha Vaxtarauki T-tala
a-liður ............. 2230
b-liður.............. 4066 1836 ± 104 17.7##*
c-liður ............. 5191 2961 ± 104 28.5***
d-liður ............. 5019 2789 ± 104 26.8***
Auðvitað er líka mjög öruggur vaxtarauki milli b- og c-liðs, en eng-
inn raunhæfur munur fyrir fosfóráburðinn.
Af þessum tveimur síðasttöldu tilraunum má ráða eftirfarandi:
1. Búfjáráburðurinn hefur í þeim gefið mjög bágborinn árangur, sem
meðfram má rekja til þess, að hann er borinn á að vorinu, eða á óhag-
kvæmasta tíma, ogýtir þetta allt undir það, að búfjáráburði eigi að dreifa
að haustinu, sé hann notaður til yfirbreiðslu.
2. Tilbúni áburðurinn virðist hafa nýtzt mjög vel, ef skortur á öðr-
um efnum hamlar ekki nýtingu, en fyrri tilraunin sýnir greinilegan skort
bæði á kalí og fosfór, þótt köfnunarefnisskorturinn sé mestur.
3. Þrátt fyrir það, þótt skorturinn á kali og fosfór sé greinilegur, virð-
ist honum fullnægt með \/% búfjáráburði, þ. e. um 17 tonnum af kúa-
mykju á ha, þegar köfnunarefnisnotkunin er ekki meira en 65 kg hreint
N á ha.
4. Það er mjög líklegt, að notkun fljótvirks köfnunarefnisáburðar
örui notagildi búfjáráburðarins. I þessari tilraun má vera, að það sé kalí
og fosfór búfjáráburðarins, sem þessu veldur.