Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Síða 38
36
í öllum tilraununum hefur brennisteinssúra ammoniakið reynzt mun
lakar, og gæti það bent til þess, að jarðvegur tilraunastöðvarinnar á Eið-
um hafi þolað illa áburð, sem hafði súr áhrif. Sýrustig jarðvegsins mun
ekki hafa verið rannsakað.
Þá er fróðlegt að bera saman áhrif stærri og minni áburðarskammtsins
af kalksaltpétri og athuga, hve mikið af heyi fæst fyrir kg af köfnunarefni
í hvorum þeirra fyrir sig. Hreint N, miðað við ha, var 46.5 kg þrjú fyrstu
árin og 69.75 kg tvö síðustu árin á d-lið og helmingi meira á e-liðnum.
Árangurinn varð þannig í kg á ha og kg á kg N:
a. Ekkert N d. i/2 N d. .f. a Kg hey á kg N e. V, N e.^-d Kg hey á kg N
1929 1490 4490 3000 64.5 6280 1790 38.5
1930 870 5290 4420 95.1 7180 1890 40.6
1931 960 4760 3800 81.7 6620 1860 40.0
1932 730 5820 5090 73.0 7880 2060 29.5
1933 1030 8010 6980 100.1 10100 2090 30.0
Meðaltal 1024 5674 4650 83.3 7612 1938 34.7
Vaxtarmunurinn af viðbótarskammtinum á e er aðeins y5 samanborið
við d, og er munurinn þó ennþá meiri tvö síðustu árin eftir að áburðar-
magnið er aukið. Þar með er ekki sagt, að vaxtaraukinn á e-lið geti eigi
greitt áburðaraukann, en gera má ráð fyrir, að þar sem áburðarmagnið af
þýzkum kalksaltpétri var komið upp í 900 kg á ha, þá hafi síðasti sekk-
urinn verið farinn að gefa lítinn vaxtarauka. Hins vegar er áburðarauk-
inn fyrir minna áburðarmagnið, allt upp í 70 kg N á ha, mjög góður.
Athyglisvert er það, að vaxtaraukinn eftir minni áburðarskammtinn sveifl-
ast miklu meira frá ári til árs eftir árferði, heldur en vaxtaraukinn af við-
bótinni.
Bæði á Akureyri og Sámsstöðum hafa verið gerðar nokkrar saman-
burðartilraunir á köfnunarefnisáburði. í þeim hafa saltpéturstegundirnar
reynzt mjög áþekkar og eins brennisteinssúrt ammoniak, og er ekki ástæða
til að rekja það frekar, nema eina tilraun, Hansens-tilraun, sem gerð var
með líku sniði á öllum stöðvunum. Á Akureyri er tilraunin gerð í fimm
ár, 1929—1933, eins og á Eiðum, og á Sámsstöðum frá 1930—1933. Áburð-
armagnið má heita eins á öllum stöðvunum til 1931, en er 1932 aukið á
Eiðum um þriðjung, en óbreytt öll árin á Akureyri og á Sámsstöðum. Á
Sámsstöðum er tilraunin gerð í gömlu túni, sjálfsagt vel frjóu, svo sem
sjá má af uppskeru af a-liðnum. Á Akureyri er tilraunin einnig gerð í
gömlu túni, sæmilega ræktuðu. Á Eiðum hefur tilraunin verið gerð í
mjög mögru landi.
Meðaluppskeran hefur orðið þannig á þessum þremur stöðvum í kg
af heyi af ha: