Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Síða 56
54
vitað um þann búfjáráburð, sem notaður er, annað en það, að það var
kúamykja, og af henni eru notuð svo og svo mörg tonn á ha. Um jurta-
nærandi efni í búfjáráburðinum er ekkert vitað, en jafnvel þótt við ger-
um ráð fyrir mjög lélegum áburði, er erfitt að hugsa sér, að frjóefnamagn
mykjuskammtsins hafi ekki verið snöggt um meira heldur en í tilbúna
áburðinum. Sé gizkað á 0.25% N, 0.2% PoOs og 0.35% KoO, sem er
mjög lágt, fæst samt sem áður meira magn af jurtanærandi efnum í bú-
fjáráburði heldur en í tilbúnum áburði.
Áburðar- og sláttureitir tilraunarinnar voru 10 x 10 = 100 m2, og
auk þessa eru eins metra breið varðbelti, er eigi virðast hafa verið ábor-
in. Liðimir eru þrír, en endurtekningar fjórar í jafnmörgum röðum.
Áburðarmagnið er aukið um þriðjung eftir fjögur ár, og búfjáráburð-
urinn svo aftur um þriðjung eftir eitt ár.
Áburður á liðina var því þannig, miðað við ha:
a. Áburðarlaust.
b. 20 tonn búfjáráburður 1928—31, 30 tonn 1932 og 45 tonn frá og með 1933.
c. 300 kg Chilesaltpétur, 250 kg superfosfat, 200 kg kalí árin 1928—31.
450 kg Chilesaltpétur, 375 kg superfosfat, 300 kg kalí árin 1932—41.
I hreinni jurtanæringu, kg á ha, hefur þetta verið þannig, ef reiknað
er með þeirri lágmarksjurtanæringu í búfjáráburðinum, sem gizkað var
á hér að framan:
/ meira áburðarmagninu:
Búfjáráb. 50kgN 40 kg P203 70 kg KaO 112.5 kgN 90 kg P205 157.5 kglCO
Tilb. áb. 45 kg N 50 kg P*05 74kgK20 67.5 kgN 75 kg P205 111.0 kg KzO
Samkvæmt þessu hefði áburðarmagnið getað verið áþekkt fyrstu fimm
árin, en mun minna af tilbúna áburðinum í níu síðustu árin, og er þó
reiknað með mjög lélegum búfjáráburði.
Vegna breytinga þeirra, sem gerðar voru á áburðarmagninu, gæti
verið eðlilegt að gera tilraunina upp í tvennu lagi, taka fyrstu fjögur
árin sér, eða jafnvel fimm ár, meðan hlutfallið milli áburðartegundanna
er eins, en ekki virðist þetta þó skipta miklu máli, svo sem sjá má, þegar
reiknuð er út meðaluppskera liðanna og meðalvaxtarauki fyrir þessi tíma-
bil í hkg af heyi á ha. Hlutfallið er mjög áþekkt fyrir bæði tímabilin.
Meðaltal 1928-32
Meðaltal 1933-41
Meðaltal 1928-41
Aburðarl. Búfjáráb. Vaxtarauki Tilb. áb. Vaxtarauki
11.1 20.2 9.1 41.9 30.8
11.5 28.4 16.9 55.2 43.7
11.4 25.6 14.2 50.5 39.1