Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Qupperneq 69
67
búfjáráburður og tilbúinn áburður eru bornir á, svo sem uppskerutöl-
urnar, en þó einkum hlutfallstölurnar á töflu XVII bera með sér.
Augljós skortur er bæði á kalí og fosfór í tilrauninni, en hvort þessi
skortur fer vaxandi er ekki eins augljóst; þó virðist svo hvað kalíið áhrærir
að minnsta kosti.
Þess má geta, að fyrsta árið er ekki borið á alveg samkvæmt áætlun.
Hafði verið ætlazt til, að áburðarreitirnir yrðu aðeins 6 x 6 = 36 m2, en
þeir urðu óvart 50 m2, og var dreift á þá þeirn áburði, sem ætlaður hafði
verið á 36 m2. Þetta var svo bætt upp með dálitlu af saltpétri á alla lið-
ina. Þetta skýrir það að verulegu leyti, hve hlutfallslega góður árangur
verður af búfjáráburðinum þetta ár og hve litlu virðist muna, þegar bú-
fjáráburðurinn er aukinn.
Venjulega er það tekið fram, að afrak hafi orðið mikið. Oftast nær
hirðist fljótt og vel af tilrauninni nema 1934, þá lá fyrri sláttur og hrakt-
ist fram í september.
Rannsókn á öryggi tilraunarinnar gaf eftirfarandi árangur:
Frávik Frítala Meðalfrávik F-gildi
Áburður : áburðarlausu . . 1036.01 1 1036.01 3441.9***
Áburðarskammtar.......... 640.83 3 213.61 711.0***
Skekkja ................. 29.53 98 0.301
Meðalskekkja fyrir áburðarliði verður m = ± 43 kg hey á ha og m/m
= ± 60 kg hey á ha.
Vegna þess, að samreitir tilraunarinnar eru einum færri heldur en
liðirnir, verður niðurskipan reita ekki eins og bezt verður á kosið. Þetta
veldur nokkurri skekkju á uppskerutölunum, sem þó er hægt að leið-
rétta:
Liðir Fundin meðaluppsk. Reikn. meðaluppsk. Vaxtarm. T-tala
a.......... 1291 kg hey ha 1310 kg hey ha
b............... 2956 2939 --------
c............... 5482 5467 2528 ± 60 42.1***
d............... 4551 4620 1680 ± 60 28.0***
e............... 3492 3452 513 ± 60 8.4***
Allt eru þetta mjög raunhæfar tölur, og eins þegar atliugaður er mun-
urinn á liðunum með tilbúna áburðinn sérstaklega.
Ályktanir, sem dregnar verða af þessari tilraun, verða geymdar, þar
til lokið er að ræða um næstu tilraun, sem er þessari hliðstæð.