Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Page 82
80
Árið 1935 var sáð 3. júní og tekið upp 10,—15. október.
Árið 1936 var sáð 25. maí og tekið upp 1.—2. október.
Uppskeran í hkg af ha sést á töflu XXI. Virðist svo, sem tegundin
Öster Sundom hafi borið verulega af í þessari tilraun. Hún hefur gefið
frá 20—30% meiri uppskeru heldur en hinar tegundirnar, eða að meðal-
tali 84—128 hkg meira af ha árlega. Munur þessi kemur ekki aðeins fram
í einstökum árum, heldur öll árin, en nokkuð misjafnlega mikið. Upp-
skeran er sjaldan sæmileg, sum árin léleg, og er sjálfsagt fjarri því, að
ræktun fóðurrófna geti keppt við grænfóðurliafra eða grasrækt. Nokkur
galli er það, að ekkert er vitað um skemmdir eða trénun í rófunum.
Á Akureyri voru gerðar tilraunir með flestar sömu tegundir 1927—
1928. Fynsk Bortfelder og Öster Sundom gáfu þar mesta uppskeru, en í
þeim bar talsvert á skemmdum og trénun, einkum síðara árið, en Dales
Hybride var eina tegundin, sem var skemmdalaus bæði árin.
16. Athuganir á fóðurmergkáli til ræktunar.
Það er ekki hægt að telja þetta reglulega tilraun, því að aðeins er um
einn lið að ræða, en fóðurmergkáli var sáð í sex sumur á Eiðum í 100 m2
reit og uppskeran vegin. Um áburð er ekkert bókað, og einnig sjaldnast
um sáðtíma eða uppskerutíma. Kálinu er sáð í raðir með 50 cm bili. Það
er ekki grisjað. Sprettan á kálinu varð þannig:
Ár Uppsk. í hkg áha Athugasemdir:
1932 ........... 274.0 Sprettan léleg, hæð um i/2 m.
1933 ........... 522.5 Jöfn spretta, hæð um 1 m, sverir leggir.
1934 ....... 775.5 Ágæt spretta, hæð um 1.5 m. Nokkuð jafnt.
1935 ........... 517.5 Sæmileg spretta, hæð um 1 m.
1936 ........... 300.0 Léleg spretta, hæð 50—75 cm.
1937 ....... 350.0 Sáð 30/5, slegið 10/10. Fremur lélegt og lágvaxið.
Segja má, að árangur þessi af ræktun fóðurmergkáls hafi orðið von-
um framar. Þrjú ár af sex gefa ágæta uppskeru, en þau sumur eru líka
í hlýrra lagi.
17. Samanburður á kartöfluafbrigðum í fjögur ár.
Ræktun á kartöflum var aldrei talin ábatavænleg á Eiðum. Á fyrstu
árum stöðvarinnar var hún reynd nokkrum sinnum, en jafnan með svo
lélegum árangri, að eigi þótti taka því að vega uppskeruna, ef hún þá var
einhver. Þrátt fyrir þessa döpru reynslu, er árið 1935 hafin á ný saman-
burður á kartöfluafbrigðum í stöðinni. Tilraun þessi virðist þó hafa