Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 32
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
Ko-Bop skálar
fást á KORE
í Kringlunni,
ýmist með
kjöti eða vegan.
Þessir hrís-
grjónaréttir
hafa slegið í
gegn hjá KORE-
unnendum
landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Filthy Fries með
bulgogi-nauti,
beikonbitum,
vorlauk, chilli,
kimchi-mæjó,
ostasósu og
kimchi kemur
sterkt inn á
sunnudögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Fried Tiger Balls eru stökkar djúpsteiktar risottokúlur með beikoni og osti.
Kimchi-mæjó og pikklað daikon til hliðar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Margverðlaunaðir alvöru kóreskir kjúklingavængir með pikkluðu daikon til
hliðar. Þessir slá alltaf í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
að bjóða upp á fjölbreyttan
matseðil, þannig að sem flestir
geti fundið sér eitthvað við hæfi
hjá okkur, óháð mataræði. Við
höfum aukið verulega úrval fyrir
grænmetisætur/vegan. Einnig
höfum við verið að bæta úrvalið
fyrir þá sem vilja hollari útgáfu af
sínum daglega KORE-skammti.“
Hver er vinsælasti rétturinn á
matseðli KORE?
„Vá, þetta er eins og að spyrja
hvað er uppáhalds barnið þitt! En,
það hlýtur samt að vera gangnam
style vefjan okkar eða taco-in.
Síðan koma reyndar filthy fries
sterkar inn á sunnudögum,“ segir
Atli.
Stór fastakúnnahópur
KORE hefur verið einn af vinsæl-
ustu skyndibitastöðum mathall-
anna á Granda og í Kringlunni frá
upphafi. „Maður verður eiginlega
bara hálfklökkur þegar maður
stoppar og pælir í því hve mót-
tökurnar hafa verið frábærar,
hvert sem við förum. Á töluvert
skömmum tíma höfum við byggt
upp stóran hóp fastakúnna sem
við elskum út af lífinu. Ég vil sér-
staklega biðja að heilsa honum
King Krúsa, sem er daglegur fasta-
gestur hjá okkur.
Að okkar mati þá er samblanda
af þeirri vinnu sem við leggjum
upp með og frábært starfsfólk
mikilvægasti liðurinn í því að reka
farsælan veitingastað. Á hverjum
einasta degi leitum við og starfs-
fólkið okkar ráða til að bæta mat,
þjónustu og finna lausnir. Það er
sú stöðuga vinna sem skilar sér
á endanum til gestsins að okkar
mati. Við leggjum einnig mikið
upp úr að allir gestir fari sáttir frá
okkur og við reynum að halda
uppi góðum samskiptum við alla
okkar gesti sem hjálpar við að
veita öllum okkar gestum jákvæða
upplifun.
Þá höfum verið iðnir að halda
„pop-up“ viðburði, þar sem við
förum inn á aðra veitingastaði og
komum með klikkaðar útgáfur af
KORE-matseðlinum. Síðast fórum
við til Grænlands og Færeyja í slag-
togi með Blazroca og Dj Moon-
shine þar sem við matreiddum sel
í taco. Grænlendingurinn slafraði
því í sig og núna eru kóresk sela-
taco orðin að þjóðarrétti Græn-
lands!“ segir Atli.
Nýjir KORE-staðir og handhæg
heimsendingarþjónusta
Að sögn Atla er stefnan sett á
að opna nýja staði bráðlega.
„Við höfum fengið töluverðar
fyrirspurnir frá þeim sem búa í
útjöðrum höfuðborgarsvæðisins
og eins frá landsbyggðinni. Við
setjum því stefnuna á að opna tvo,
þrjá nýja staði á árinu.“
KORE er einnig með einstak-
lega handhæga heimsendingar-
þjónustu í gegnum vefsíðuna kore.
is. „Við erum með mismunandi
matseðla í Kringlunni og á
Granda, en það er hægt að panta
allt sem er á boðstólum af mat-
seðlinum í Kringlunni. Þá bjóðum
við upp á fría heimsendingu á
öllum okkar veislubökkum. Við
sendum alla okkar veislubakka og
mat til fyrirtækja sjálf. En almenn
heimsending frá stöðunum okkar
er þjónustuð af Nágrönnum sem
er nýleg og einstaklega hentug
heimsendingarþjónusta.“
Gul veganúar-viðvörun á KORE
„Við erum alltaf með einhver
tilboð í gangi. Núna erum við með
sérstakan veganúar-afsláttarkóða
sem veitir grænkerum afslátt af
heimsendum grænmetisréttum.
Svo höfum við verið að bjóða
upp á afslætti af heimsendingum
þegar gular viðvaranir hafa verið í
gangi, sem hefur verið nokkuð oft
í vetur.“ n
Pantaðu þinn daglega skammt á
kore.is. KORE er staðsettur í Mat-
höll á Granda og á Kringlutorgi.
KORE taco og vegan vængir eru með því vinsælsta á matseðlum KORE staðanna. Allt hráefni og sósur er gert frá grunni eftir þeirra eigin uppskrift. MYNDIR/KORE
2 kynningarblað 22. janúar 2022 LAUGARDAGURHEIMSENDING