Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 34

Fréttablaðið - 22.01.2022, Síða 34
 Þegar fólk hefur vanist því að fá góðan mat heim að dyrum eru ekki líkur á að sú þjón- usta hverfi, jafnvel þó að farald- urinn hætti að vera vandamál. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr @frettabladid.is Heimsendingarþjónusta á tilbúnum mat hefur aukist gríðarlega frá því að farald- urinn hófst og hjálpað veit- ingahúsum að halda áfram starfsemi á erfiðum tímum. Ekkert bendir til þess að vinsældir slíkrar þjónustu muni dvína og hún er farin að þróast í nýjar áttir. Um allan heim hefur veitinga- geirinn gengið í gegnum erfiða tíma frá því að faraldurinn hófst vegna samkomutakmarkana, lokana, sóttkvíar og annarra sóttvarnaað- gerða. En heimsendingar hafa hjálpað veitingahúsum að halda sér á floti og koma mat til viðskipta- vina sem sitja heima og hafa jafn- mikinn áhuga á að kaupa þennan mat þrátt fyrir takmarkanir. Gríðarlega hraður vöxtur Þessi þróun var hafin áður en far- aldurinn skall á en hún hefur orðið mjög hröð eftir að hann hófst. Það eru fáir geirar sem hafa vaxið eins mikið og heimsendingar síðan far- aldurinn hófst, sérstaklega á mat, og margir veitingastaðir sem buðu aldrei upp á heimsendingar áður neyddust til að færa sig yfir í að sinna þeim eingöngu. Í þeim hópi eru meðal annars fínni veitinga- hús, sem höfðu aldrei íhugað að bjóða upp á heimsendingar þar til faraldurinn gjörbreytti aðstæðum. Í Bretlandi varð 3,7 milljarða punda vöxtur í heimsendingum á tilbúnum mat árið 2020 og þær urðu 11,4 milljarða punda virði, sem er tvöfalt meira en árið 2015. Stærsta fyrirtækið á þessum markaði í Bretlandi, Just Eat, jók tekjur sínar um 42 prósent frá 2019 til 2020 og annað vinsælt fyrirtæki, DoorDash, meira en þrefaldaði tekjur sínar á milli áranna. Þessi vöxtur hélt svo bara áfram árið 2021. Vöxturinn hefur líka verið mikill hér á landi og það er eftir nógu að slægjast. Komið til að vera Veitingastaðir eru víða farnir að geta tekið aftur við viðskipta- Heimsendingarþjónusta hefur blómstrað í faraldri Heimsendingarþjónusta á mat hefur aukist gríðarlega í faraldrinum og er farin að þróast í nýjar áttir. Það er ekkert sem bendir til þess að hún dragist saman þegar honum lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY vinum en það eru margir sem hafa vanist þægindunum sem fylgja því að geta pantað mat heim. Það eru líka ekki bara veitingastaðir sem hafa boðið upp á heimsendingar, heldur hafa bakarí, kaffihús og aðrir matsölustaðir tekið þátt í þessari þróun. Þegar fólk hefur vanist því að fá góðan mat heim að dyrum eru ekki líkur á að sú þjónusta hverfi, jafnvel þó að faraldurinn hætti að vera vandamál. Það virðist sem þetta sé þróun sem faraldurinn færði okkur sem verði áfram hluti af hversdagslífinu þegar hann er að baki. Þróast í nýjar áttir Í Bretlandi og Bandaríkjunum er heimsendingarþjónusta á til- búnum mat að þróast í nýjar áttir. Margir viðskiptavinir þar ytra kvarta yfir því að geta ekki pantað frá mörgum veitingahúsum í einu og fengið alla réttina á sama tíma, til dæmis ef einhvern langar í sushi og aðrir vilja pitsu, þannig að nú eru sum heimsendingar- fyrirtæki farin á bjóða upp á slíka þjónustu. Eitt þeirra er rekið af matvæla- fyrirtækinu C3 og til að tryggja að allur maturinn sé eldaður og afhentur á sama tíma rekur fyrir- tækið 800 svokölluð „myrkvuð“ eða „drauga“-eldhús um gervöll Bandaríkin. Það eru vöruhús með eldunaraðstöðu þar sem nokkur ólík eldhús starfa undir sama þaki og þau eru öll eingöngu að búa til heimsendar máltíðir. Í samtali við BBC kallaði framkvæmdastjóri C3 þetta „Netflix matarpantana“. Í þessum sömu löndum eru lög um matvælaframleiðslu líka ólík okkar og þar er leyfilegt að selja tilbúinn mat beint úr heima- húsi. Þess vegna eru enn önnur heim sendingarfyrirtæki farin að tengjast færum kokkum sem elda góðan mat heima hjá sér og vilja selja hann til almennings. Heimsendingar á tilbúnum mat eru því enn að aukast og þróast og ekkert bendir til þess að endalok faraldursins stöðvi þessa þróun. ■ Pantaðu mat heim eða í take away Yfir 20.000 notendur! Sæktu appið og pantaðu mat með Dineout Iceland dineout.is/pantamat Dineout_Frettabladid_jan2022_hvitt.indd 1 1/20/2022 11:40:08 PM Heimsendingar frá yfir 120 veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu á 100% rafmagni. Meiri tími fyrir þig! FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 4 kynningarblað 22. janúar 2022 LAUGARDAGURHEIMSENDINGAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.