Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 41

Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 41
hagvangur.is Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) leitar að mannauðsstjóra. Við leitum að skipulögðum, drífandi og öflugum leiðtoga sem hefur góða reynslu og brennandi áhuga á fólki og mannauðsmálum. Starfssvið • Ábyrgð á mótun og framkvæmd mannauðsstefnu SÍ • Ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk • Ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga • Yfirumsjón með framkvæmd starfsmannasamtala og samskiptamála starfsfólks • Umsjón með ráðningum starfsfólks SÍ og nýliðaþjálfun • Yfirumsjón með hæfnisprófum hljóðfæraleikara • Ábyrgð á fræðslu starfsfólks og umbótum á vinnustaðarmenningu • Aðkoma að árlegri starfsáætlun og vinnuáætlun • Ábyrgð á gæða- og starfsmannahandbók Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Farsæl reynsla af mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun • Góð þekking á kjaramálum • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni • Sjálfstæði, drifkraftur og frumkvæði í starfi • Góð skipulagshæfni • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Innsýn í heim klassískrar tónlistar er góður kostur Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í rúm 70 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr öðrum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi SÍ er um 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is. Mannauðsstjóri Skannaðu kóðann fyrir nánari upplýsingar Fyrirtæki ársins 2021 hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.