Fréttablaðið - 22.01.2022, Qupperneq 44
VIKING LIFE SAVING EQUIPMENT
Á ÍSLANDI
Óskar eftir að ráða starfsmann á skoðunarsvið fyrirtækisins.
Við óskum eftir nákvæmum, skipulögðum, heilsuhraustum og
jákvæðum einstaklingum til starfa hjá traustu fyrirtæki.
Áhugi á björgunarmálum til sjós ásamt ensku- og
tölvukunnáttu er kostur.
Nákvæm vinnubrögð og handlægni er skilyrði fyrir starfinu,
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á eha@viking-life.com
eigi síðar en 31. janúar 2022.
Hofsstaðaskóli
• Íþrótta- og sundkennari
Sjálandsskóli
• Starfsmaður á frístundaheimili
Leikskólinn Bæjarból
• Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Mánahvoll
• Deildarstjóri
• Háskólamenntaðir starfsmenn
• Leiðbeinendur
• Leikskólakennarar
Urriðaholtsskóli - leikskólastig
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Frístundaklúbburinn Garðahraun
• Stuðningsfulltrúar
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Sérfræðingur í
skipatæknideild
Í boði er spennandi starf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Við hvetjum öll kyn
til að sækja um.
Umsóknarfrestur
er til 24. janúar 2022
Hægt er að sækja
um starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Ert þú með brennandi áhuga á skipum?
Samgöngustofa óskar eftir að ráða sérfræðing í skipatæknideild. Starfið felst í
mati á tæknigögnum er varða öryggi skipa, yfirferð á gögnum vegna stöðugleika
og að votta framkvæmd stöðugleikaprófana. Meta þarf gögn vegna styrkleika skipa,
bæði plast- og málmskipa, ásamt því að eiga í samskiptum við hönnuði, útgerðir
og flokkunarfélög vegna skoðana og tæknigagna. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Hafa lokið námi í verkfræði eða tæknifræði á skipa- eða vélasviði.
Annað sambærilegt nám kemur til greina.
• Reynsla af störfum við tæknimál skipa er kostur.
• Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og geta unnið sjálfstætt og í hóp.
Sjávargötu 6
260 reykjanesbæ
www.skn.is
Skipasmíðastöð Njarðvíkur vill ráða til starfa,
til lengri eða skemmri tíma, vélvirkja, plötusmiði,
suðumenn og aðra með reynslu af skipaviðgerðum.
• Stjórnendur leggja mikla áherslu á að stöðin sé öruggur
og ánægjulegur vinnustaður fyrir allt starfsfólk hennar.
• Vinnuskylda er 34 klukkustundir á viku, 4 virkir dagar í viku.
• Alla jafna er yfirvinna í boði fyrir þá sem það vilja.
• Í boði eru ferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu.
• Mötuneyti er á staðnum.
• Flestar viðgerðir í stöðinni fara fram innanhúss í skipaskýli.
STARFSFÓLK Í MÁLMIÐNAÐI
ÓSKAST TIL STARFA
Skipasmíðastöð Njarðvíkur er elsta iðnfyrirtæki á Suðurnesjum stofnað 1945. Frá
stofnun hefur það sérhæft sig í skipasmíðum og viðgerðum á skipum allt að 800 þungatonnum.
Árið 1998 var tekið í notkun stórt skipaskýli þar sem boðið er upp á allar almennar skipaviðgerðir
allt árið um kring og óháð veðri skapar það mun betra starfsumhverfi við viðgerðir og viðhald skipa.
Frekari upplýsingar fást hjá Þráni Jóns. í síma 892 2328
og umsóknir má senda á netfangið: thrainn@skn.is.